Á þeim árum sem myndlistargenin reyndu að ná yfirhöndinni hélt ég mig ákveði við pappír (margar gerðir reyndar), bíanta og/eða þurrpastel. Eitt árið slysaðist ég þó til að fara á námskeið þar sem notaðir voru olíulitir og þá var skaðinn skeður. Ég henti mörgum krónum í olíuliti og pensla. En það var gaman, meðan á því stóð.
Í einhverri handavinnumaníunni heklaði ég blúndudúka úr fínu heklugarni, held samt að ég hafi ekki klárað neinn því áður en það tókst var búið að smita mig af orkeringardellu og síðan hef ég orkerað eitt og eitt stykki. Og klárað þau nokkur. Núna finn ég að orkeringarfíknin herjar á mig en ég má ekki vera að því að sinna henni strax. Ég þarf nefnilega að nota saumavélina.
Við mæðgur fórum fyrir nokkrum vikum og keyptum efni til að setja um svampdýnu sem mýkir setuna á forláta setbekk í borðkróknum. Þessi bekkur er naglfastur og sérheimasmíðaður í hornið og það sama má segja um dýnuna ofan á honum. Efnið sem fyrri eigandi saumaði utan um hana er bara að detta í göt og við því er ekkert annað að gera en endurnýja áklæðið. Svo við keyptum efni sem ég ætlaði að sauma í hólk og smeygja dínunni í. Því miður gleymdum við að mæla, efnið of lítið og ekki um annað að ræða en kaupa viðbót. Ef maður þarf að sauma viðbót er eins gott að kaupa tvo liti í viðbót og sauma bara bútasaum, ekki satt?
Þá er komið að dellunni. Ég er logandi hrædd um að ég fái dellu fyrir þessu því ég er búin að sitja við tölvuna í allt kvöld og skoða munstur. Það á eftir að fara hellings tími í þennan leikaraskap. Reyndar fór ég líka og keypti efni í pils í dag, klæðskerinn sem vinnur með mér ætlar að búa til snið fyrir mig eftir pilsi sem ég á og líkar vel við og ef manni líkar vel við eitthvað er engin ástæða til annars en að nota það áfram. Ekki satt?
Allavega, þá er ég búin að finna mér bútasaumsmunstur sem ekki krefst mikillar handlagni, breyta því að mínum þörfum og þessum þremur litum sem ég er með og þá er bara að koma því í ræmur og byrja að sauma þær saman. Ekki flókið.
Ætli það sé ekki bara nóg að rífa efnið niður í ræmur?
Ég ætla ekki að fara út í þetta mynstur en flott er það.

Ég ætla ekki að snerta á knippli, ég er hrædd um að það yrði ólæknandi della.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli