Ég rakst á þetta í Veru um daginn og þar sem höfundur er ókunnur ætla ég að voga mér að birta þetta hér og vona að þýðandinn, Bára Magnúsdóttir, og ritstjórn Veru fyrirgefi mér það. Ég veit ekki hvar þetta er skrifað upphaflega, gæti verið í Bandaríkjunum, en það er merkilegt að það skulu vera punktar þarna sem eru ekki enn orðnir raunin.
Ef þú ert kvenkyns og ...
... hefur atkvæðisrétt. Þakkaðu femínista.
... færð borgað eins mikið og karlmenn sem vinna sama starf. Þakkaðu femínista.
... fórst í framhaldsnám í stað þess að ætlast væri til þess að þú hættir eftir skyldunámið svo bræður þínir gætu farið í nám, því „þú giftist hvort eð er bara“. Þakkaðu femínista.
... getur fengið eða gefið upplýsingar um getnaðarvarnir án þess að lenda í fangelsi. Þakkaðu femínista.
... læknirinn þinn, lögmaður, prestur, dómari eða þingmaður er kona. Þakkaðu femínista.
... tekur þátt í keppnisíþróttum. Þakkaðu femínista.
... getur verið í buxum án þess að vera útskúfuð úr söfnuðinum eða flæmd burt úr bænum. Þakkaðu femínista.
... yfirmanni þínum leyfist ekki að þvinga þig til að sofa hjá sér. Þakkaðu femínista.
... þér er nauðgað og réttarhöldin fjalla ekki um síddina á pilsinu eða fyrri kærasta þína. Þakkaðu femínista.
... kemur litlu fyrirtæki á laggirnar og getur fengið lán út á eigið nafn og lánstraust. Þakkaðu femínista.
... kemur fyrir rétt og er leyfilegt að bera vitni þér til varnar. Þakkaðu femínista.
... átt eign sem er eingöngu þín. Þakkaðu femínista.
... hefur rétt til að ráðstafa launum þínum enda þótt þú sért gift eða eigir karlkyns ættingja. Þakkaðu femínista.
... færð forræði yfir börnunum í kjölfar skilaðar eða sambúðarslita. Þakkaðu femínista.
... skoðanir þínar skipta máli við uppeldi barna þinna í stað þess að þeim sé algerlega stjórnað af eiginmanninum/föðurnum. Þakkaðu femínista.
... eiginmaður þinn lemur þig og það er ólöglegt og lögreglan stoppar hann í stað þess að lesa þér pistilinn um hvernig þú eigir að bæta hegðun þína sem eiginkona. Þakkaðu femínista.
... þér er veitt prófgráða að loknu framhaldsnámi í stað viðurkenningarskjals fyrir þátttökuna. Þakkaðu femínista.
... getur gefið barni þínu brjóst á almannafæri svo lítið beri á, án þess að vera tekin föst. Þakkaðu femínista.
... og borgaraleg réttindi þín renna ekki saman við réttindi eiginmanns þíns þegar þú giftist. Þakkaðu femínista.
... hefur rétt til að neita kynlífi með sýktum eiginmanni (eða bara „eiginmanni“). Þakkaðu femínista.
... hefur rétt á að sjúkraskýrslur þínar séu þitt einkamál en komi ekki fyrir sjónir karlmannanna í fjölskyldu þinni. Þakkaðu femínista.
... hefur rétt til að lesa þær bækur sem þú vilt. Þakkaðu femínista.
... getur borið vitni fyrir rétti um glæpi eða misgjörðir eiginmanns þíns. Þakkaðu femínista.
... getur valið að eignast barn eða eignast ekki barn þegar þú vilt en ekki eftir hentugleika eiginmanns eða nauðgara. Þakkaðu femínista.
... sérð fram á að lifa til 80 ára aldurs í stað þess að deyja á þrítugsaldri vegna ótakmarkaðra barneigna. Þakkaðu femínista.
... sérð sjálfa þig sem heilsteypta, fullorðna manneskju í stað ósjálfráða einstaklings sem þarfnast karlmanns til að stjórna sér. Þakkaðu femínista.
... drepst úr leiðindum. Þakkaðu femínista.
... finnur andfýlu í röð í bankanum. Þakkaðu femínista.
... heyrir órökstuddan þvætting. Þakkaðu femínista.
... fyrir að lækka laun heilu stéttana. Þakkaðu femínista.
... fyrir að setja innanpíkubleikan lit aftur í tísku. Þakkaðu femínista.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli