Við lampinn náðum í tæka tíð fyrir hann en þetta varð til þess að ég missti af verkum annara en sonarins og finnst það miður en er ekki þó eins niðurbrotin og ef ég hefði misst af honum líka.
Verkið hans var virkilega skemmtilegt, húmorinn á sínum stað í dramatísku verki sem var blanda af sviðsleik og kvikmyndaverki og ég ætla ekki að lýsa frekar hér. Hann myndaði verkið í lokin þegar áhorfendur voru farnir og ef hann kemur því á netið linka ég bara á það.
Örþreytt eftir stressið við leiksýningar, ritgerðaraðstoð, vinnuálag og pökkunaráhyggjur skreið ég upp í sófa þegar ég var búin að næra mig í kvöld og þar svaf ég í tvo og hálfan tíma og hefði sennilega sofið til morguns ef síminn hefði ekki hringt. En af því síminn hringdi og ég skreið framm úr er ég vakandi enn klukkan tvö að nóttu.
Ég er líka búin að pakka bráðnauðsynlegum hlutum eins og blíöntum,vatnslitum, teikniblokk, handavinnu og lesefni.
Svo var fararstjórinn að minna okkur á að kjósa! Ég var búin að steingleyma kosningunum, hvernig sem það er nú hægt í þessu auglýsingaflóði sem er að steypast yfir. Ætli ég verði ekki að bjarga því áður en ég fer. Þetta stefnir í að ég megi ekki vera að því að vinna eftir hádegi á föstuda!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli