25. apríl 2007

Veðurfréttir

Í Yerevan höfðuborg Armeníu er hitastigði frá 0 til 14°C og í öðrum héruðum landsins er spáð allt niður í 10 stiga frosti á nóttinni. Mér finnst veðurspákortið þeirra hrein snilld og finnst veðurstofa Íslands alveg mætti koma með kort sem sýndi veðurspá og veðurlýsingu fyrir hvern landshluta þegar maður færir bendilinn yfir viðkomandi svæði eins og þarna er.
Samkvæmt þessu veðurkorti þeirra Armena skiptist landið í nokkur héruð og ef mér tekst að lesa rétt eru þau; Shirak, Ararat sem heitir greinilega eftir samnefndu fjalli sem var einu sinni innan landamæra Armeníu en tilheyrir nú Tyrklandi, Aragatsotn en þar er spáð næturfrosti niður undir 10° næstu daga, Lori, Armavir, Kotayk, Tavush, Gegharkunir en í því liggur Sevan vatnið sem ég er eftir að finna út hvað er stórt, Vayots-Dzor, Syunik og Artshkh en þetta síðastnefnda liggur inni í Azerbaijan, smá ræma af Azerbaijan liggur milli þess og hins hluta Armeníu.
í Georgíu er spáð allt upp í 18 stiga hita næstu þrjá daga, allt annað hitastig þar eða í Armeníu enda liggur landið mun lægra og að Svartahafi. Í Azerbaijan er ríkisveðurspáin á netinu óvirk en á skemmtilegri rússneskri síðu sem ég fann er spáð 8 til 15 stiga hita á laugardag og rigningu.
Áhugi minn á veðrinu í þessum þremur ríkjum er ansi þráhyggjukenndur þessa dagana þar sem ég er að reyna að átta mig á hverju á að pakka niður í ferðatöskuna.
Ég þoli ekki að vera með of mikinn farangur en ég þoli heldur ekki að vera skjálfandi úr kulda í 10 stiga frosti eða kófsveitt 15 stiga hita. Mér sýnist nú á öllu að ég megi pakka bæði físinu, ullinni, hlýrabolum og stuttbuxum í töskuna, ég ætla samt að skilja föðurlandið eftir.
Ég enda með alltof mikinn farangur!

Engin ummæli: