Ógáfuleg frh.
Ég dreif mig sem hraðast heim eftir fund gróf upp blöðin mín, sem voru svo skipulega sett inn í möppu að ég ætlaði aldrei að finna þau, og viti menn, það var ekki stafur á þeim um sprautur. Ekki orð og ég endaði á að hringja í fararstjórann sem svaraði eftir nokkrar tilraunir og klukkutíma og á þeim tíma hafði ég fundið aukaskammt af æðruleysi sem vonandi dugir mér fram á þriðjudag og með mestu rósemi tjáði hún mér að hún hefði bara bent fólki á að ræða um það við heimilislækni hvort þörf væri á einhverjum sprautum áður en farið væri á svæðið. Hún sagðist engar sprautur hafa fengið áður en hún fór.
Mér létti stórum og ætla frekar að láta athuga þessa tveggja vikna hálsbólgu mína en vera að hafa áhyggjur að sprautum.
Ég ætlaði að skrifa eitthvað örstutt um þetta og margt annað en er búin að gleyma þessu öðru og bulla allt of mikið um sprautur. Eins gott að það er ekki orð sem er oft googlað.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli