26. apríl 2007

Ógáfuleg

Ég hefði viljað finna einhver gáfuleg orð til að lýsa áfallinu sem ég varð fyrir í dag á svokalluðum miðafundi með fararstjóranum mínu og væntanlegum ferðafélögum þegar ég leit á blöðin sem ég hélt á og sá þar svart á hvítu ,,Vonandi eru allir búnir að fara í þær sprautur sem við töluðum um á fyrri fundinum".
Heilinn í mér hamaðist við að finna hvar í blöðunum sem ég fékk í vetur hefðu verið taldar upp þær sprautur sem nauðsynlegar væru fyrir ferðina en fann ekkert. Það var auðn og tóm á því minnissvæði!
Til að vera ekki að blanda öllum hópnum í vandræðin sem helltust þarna yfir mig, og framkölluðu, ekki fiðrildahrúgu heldur iðandi maðkahrúgu í maganum með tilheyrandi ógleði, ákvað ég að fara bara heim eftir fund, lesa mér til um hvaða sprautudót þetta nú var og herja þær svo út úr heimilislækninum á morgun ef þess væri nokkur kostur.

Engin ummæli: