26. febrúar 2007


Ég hef annað slagið velt því fyrir mér að fara með gatslitnu geisladiskana mína og fá ný eintök af þeim, ég er jú að kaupa afnotarétt af tónlistinni og það voru engin tímaákvæði í kaupsamningi. Nú er svo komið að Bláir draumar er kominn í göt og græjurnar endurtaka sífellt sömu laglínurnar. Ég er að sjáfsögðu búin að láta brenna fyrir mig annað eintak, sem nota bene hlýtur að vera löglegt úr því ég keypti diskinn af útgefenda á sínum tíma, en þetta auka eintak mitt virðist bara ekki alveg vera að gera sig. Það vill hjakka í sama farinu svo ég efast um að svona heimakópía hafi sömu gæði og orginalinn.

Samkvæmt þessari frétt ætti ég að geta farið til útgefanda og beðið um nýtt eintak og borgað bara brot af því sem diskurinn kostar út úr búð.

Það gæti nú verið ferðarinnar virði að sjá svipinn á mannskapnum ef ég mætti með gamla eintakið og heimtaði nýtt.


Engin ummæli: