Jæja þá. ,,Ekkert safnarölt?" sagði konan og það er nokkuð nærri lagi. Að vísu fór ég með yngra afkvæminu og tengdadótturinni í gömlu kartöflugeymslurnar í Ártúnsholtinu og skoðaði þar vídeóverk, ljósmyndir, málverk og eitthvað fleira. Undir planinu framan við húsið var skemmtilegasta sýningin á svæðinu. Myrkvuð nýbyggð bílageymsla með sementsangan í loftinu og myndsýningu á tjaldi á miðju gólfi. Vatnsagi á gólfinu og svo kalt að kertaljósin höfðu lognast út af og þessi sérkennilega sýning á gömlum myndum á tjaldi. Þetta leit í fyrstu út eins og rispuð kvikmyndasýning en við nánari skoðun virtist vatn renna yfir myndina. Þegar maður fór svo alveg upp að tjaldinu og á bak við það reyndist þetta vera tilbúinn foss þarna á miðju gólfi.
Það var flott.
Ætlaði svo að bjóða ungunum í kaffi einhverstaðar en það var búið að loka Þjóðminjasafninu og ég rataði ekki inn í Kaffivagninum, reykjarkófið var svo þykkt þar. Ég endaði þess vegna með að sýna þeim fótabaðið á Nesinu en greyjunum var svo kalt að þau neituðu að setjast með mér í fótabað. Hann aftur á móti þefaði vel og rækilega af hákarlahjallinum. Umm, ef eitthvað gæti gert mig að innbrotsþjófi þá er það þessi hjallur.
Kvöldinu hefur svo verið eytt í að skoða veðrið um víða veröld og setja veðurtengla hér inn.
1 ummæli:
Nebb. Ég fór ekki einusinni á Erró, enda ekkert hrifin af Erró eða verkunum hans. Ég bara vann mest allan daginn og tók svona smá stikkprufur á mannlífinu.
Skrifa ummæli