27. nóvember 2004

Vinningur

Ég fékk vinning á netinu áðan. Var gestur nr. 50.000 og átti vinning upp á 1,600$ ég náttlega hugsaði með mér ,, þvílíktur auglýsingabanner, ég er viss um að þetta kemur upp aftur ef ég fer inn á siðuna aftur" og prófaði, og sjá ég fékk ekki vinning aftur. Stjörnuljósin og rauði borðinn með ferðavinningnum mínum var horfinn og kemur aldrei meir og ég sem las ekki einu sinni hvert ég mátti fara og hvað það kostaði mig marga dollara að sækja vinninginn og hvort ég þyrfti að gefa upp kreditkortanúerið til að fá hann. Úps húps.
Jæja ég losna þá við að endurnýja vegabréfið og/eða fara á Laufásveginn til að fá áritun. ;)
Það hefði nú annars verið svolítið gaman að lesa vinningaskrána almennilega áður en ég lokaði síðunni, þó ég hefði aldrei hringt innan 180 sek. til að gefa upp kreditkortanúmerið mitt.
Ætli það sé annars hægt að hringja úr heimasímanum til útlanda. Ég er ekki viss um það.



Ææææ,
Man núna að mig dreymdi fyrir peningum um daginn (fullt af skít) og hélt auðvitað að ég ætti að kaupa mér lottómiða sem ég gerði ekki frekar en vanalega og þegar ég fæ vinning á þessa að kaupa nokkurn miða þá bara loka ég á síðuna.
Ég minni mig bara áfram á allt sem ég ætla að gera þegar ég fæ stóra vinninginn á miðann sem ég kaupi ekki.

Engin ummæli: