4. maí 2005

Hjartasár

Ég kom við á apótekinu í hádeginu.
Ætlaði að fá eitthvað við hjartasári en var sagt að Prozac væri lyfseðilsskylt og að mestu andans jöfrar og skáld hefðu þjáðst af ólæknandi hjartasárum og heimshryggð svo ég skyldi snúa mér að skáldskap. Er búin að reyna þetta í allan dag en finnst eiginlega allt hafa verið sagt og ort sem hægt er að yrkja en Zovirið virkaði ágættlega á frunsuna.

Engin ummæli: