10. nóvember 2010

Úr einu fagi í annað

Ég bíð í ofvæni eftir að komast inn í tölfræðiprófið - já og út úr því aftur- mér dugir að fá fimm og svo vonast ég til að stærðfræði og tölfræði komist af án minnar hjálpar það sem ég á eftir ólifað. Ef ég þarf á tölfræðihugsun að halda í framtíðiðnni leita ég aðstoðar hjá einverjum sem hefur gaman af þess háttar hugsun.
Eftir próf á föstudag byrjar dönskuáfangi og ég velti því fyrir mér hvort ég sé eini nemandinn á landinu sem hlakkar til dönskunnar. Það væri annars hægt að gera á þvi könnun og gera svo  fallega tölfræði úrvinnslu úr henni. Með myndritum og alles.  

Engin ummæli: