Ég á að vera að læra tölfræði, ég á efitr 4 af 10 köflum bókarinnar og prófið er í fyrramálið. Mér er nærri því slétt sama nú hugsa ég ekki um annað en ritmál. Mér var bent á það í gær að einn frægasti glæpasagnahöfundur Íslands skrifaði í lýsingu á atburðarrás í einni metsölubók sinni „hún settist inn í bílinn og ók af stað. Hún startaði bílnum þrisvar áður en hann fór í gang og keyrði síðan af stað með rykkjum...“ Ég hef smá fyrirvara á þessu, ég man þetta ekki alveg orðrétt en ég man að hún ók af stað og startaði svo bílnum og keyrði af stað.
Þetta minnir mig á parið sem ók austur fyrir fjall, Hellisheiði og Þrengsli. Það er margt að varast í þessum heimi!
Í morgun fékk ég póst frá EHÍ, það er hættulegur pósturinn frá þeirri stofnun, og nú langar mig að skrá mig á námskeið eftir áramót. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og ég get alveg hugsað mér að eyða nokkrum vikum í að lesa jólabækurnar með Einari Kárasyni.
Ég hef ekki fundið neinn enn sem er tilbúinn til að stunda þennan lestur með mér (engan sem ég þekki) og auglýsi hér með eftir áhugasömum. Annars er kannski bara betra að þekkja engan á svona námskeiðum.
Því eins og segir í vísunni:Þar sem enginn þekkir mann
þar er best að vera
Því að allan andskotann
er þar hægt að gera.
2 ummæli:
hahahahaha..... ég deili alla vega ekki með þér þessum áhuga þínum. Mér dugar að þú segir mér bara það áhugaverðasta sem gerist þarna,,,,
Bíddu nú og bíddu nú!
Er þetta ekki konan sem vill endilega vera í leshring og lesa eina bók í mánuði með einhverju ókunnugu fólki?
Ég hefði nú haldið að við Einar Kára værum meira spennandi en það.
Skrifa ummæli