2. október 2010

Missti mig

í bulli núna og sé að ég þarf að búa mér til alvöru síðu til að safna drasli inn á.  Ég er að hugsa um að skreppa aðeins til Uzbekistan í september á næsta ári, (nokkur sæti laus í sept., uppselt i apríl!) og þá þarf ég auðvitað að fara að fylgjast með veðrinu  þar. Ég hefði auðvitað átt að byrja að fylgjast með því 1. sept. en seint er betra en aldrei.
Svo þarf ég pláss fyrir hitt og þetta sem mér dettur i hug eins og orðabækur og blogg sem ég les og blogg sem ég les ekki af því enginn segir neitt á þeim. Besti tíminn til að uppfæra síðuna er í miðjum próflestri.
Já og svo þarf ég meira pláss fyrir textann, ég er samt svo gáfuð núna að ég ætla ekki að fara að lesa mig í gegnum html kóðann á síðunni til að breyta henni.
Að breyta bakkgunni og leturstærð það er annað mál. Snilld að geta svo skipt um bakgrunn eftir því í hvernig skapi maður er. Það er sítróna á sunnudegi. Sjáum til með mánudag.
-----
Ich bin     Wir sind
Du bist    Ihr seid
Er ist       sie sind

Engin ummæli: