4. apríl 2010

Mig langar

í mörg kíló af hráskinnku. Hver vill vera memm í að búa til svona í haust?

Þessi síða hans Ragnars Freys kemur af stað kokkafiðringi í allra mestu eldhúsletingjum eins og mér. Ég eldaði Guinnesbökku um daginn og þó ég yrði að notast við Kalda í staðinn fyrir Guinnes smakkaðist bakan frábærlega. Kássuna ætlaði ég að hafa klára með dagsfyrirvara en svo mátti enginn vera að því að koma í mat á réttum degi þannig að hún var geymd í ísskápnum í tvo daga og smakkaðist ekki verr fyrir það. Sniðugur réttur fyrir matarboð því hann má gera klárann með allt að tveggja daga fyrirvara.



Og að lokum sýnishorn frá þessari mánaðardvöl með fólki og fuglum á austfjörðum.

Það hefur verið snjór og frost og lögn og blíða og allt þar á milli. Norðanrokið og kuldinn síðustu daga hefur samt verið frekar leiðinlegur og stytt göngutúrana ansi mikið.

Veður eins og á þessari síðustu er þó alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér. Þetta er kyrrlátur mjúkur heimur með sjávarhljóði og snjóangan.

Engin ummæli: