Á skipulagsplaninu mínu stendur ,,Enska frá 10:30 til 12" eftir það átti að vera hlé til að fara í göngutúr og svo átti að setjast yfir stærðfræði. Ég er búin að gera flest annað en sinna þessu.
Sinnti vinnunni smávegis, ryksugaði og skúraði smávegis. Hékk helling á Facebook við að safna páskaeggjum og efni í tölvuleikjabyggingar og tíminn líður ótrúlega hratt.
Manneskja sem er 95 % viss um að hafa fallið í síðasta prófi ætti að vita betur og vera byrjuð að læra.
Ég er löt!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli