8. júlí 2007

Smásögur og ljóð

Sjúkraliðinn er orðin ljóðaunnandi í sumarfríinu og um leið og ég byrja að lesa ljóð á einhverstaðar langar mig í meira en það er lítill tími til að leggjast í ljóðalestur.
Ég las smásögu um daginn sem mér fannst skondin og skemmtileg og ég þarf að lesa hana aftur í rólegheitum til að átta mig aðeins betur á hvað mér finnst þar fyrir utan og því þarf ég að koma í verk fljótlega. Ég bíð svo nokkuð spennt eftir Fjallvegabók sama höfundar.

Ég er búin að taka svo mikið af húsgögnum í geymslu að ég þarf að fara að sofa í þvottahúsinu.
Það er spáð 19 til 29 stiga hita í Róm á morgun og eftir það er okkur slétt sama um Ítalíuveður því Tölvunarfræðingurinn kemur heim á þriðjudag og vonandi tekst henni að skáskjóta sér inn með skápum og borðum til að komast inn úr dyrunum.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvaða smásögu....
langar mig að lesa hana... vil ég lesa hana... þarf ég að lesa hana..
Segðu mér....

Nafnlaus sagði...

Hún heitir Skollaleikur og ef þú veður stillt lána ég þér kannski bókina sem hún er í.