Ég er mætt á heimilið aftur og köttunum er óhætt að fara að draga fram ryksuguna. Mér blöskrar umgengnin hjá þeim.
Á öðrum stað er kona sem á að fara að toga upp um sig buxurnar og fara að sinna vinnunni enda nennti hún ekki að sækja mig og því verður engin miskun sýnd í vinnumálum.
Ég þarf að temja mér nýtt göngulag og hnén á mér mótmæla því hástöfum. Ég vissi það ekki fyrr en á fimmtudag að ég kynni ekki að ganga, ég hef staðið í þeirri trú frá því ég man eftir mér að ég gengi bara rétt eins og annað fólk en nú fullyrðir kona sem ég hitti að ég læsi hnjánum þegar ég stend og geng og þyngdarpunkturinn eigi ekki að vera í hælnunum heldur táberginu.
Ja svei.
1 ummæli:
Ég var alveg hryllilega dugleg í dag..
Sat með kvarnirnar í gangi heima hjá þér í marga tíma..
Svo verð ég ofboðslega afkasta mikil á morgu...
Ég er æði.
Skrifa ummæli