Bíllinn minn stendur í hlaðinu heima hjá einhverjum öðrum en mér og lyklarnir læstir inni hjá konu sem ekki vaknar þó ég hringi.
Ég var að velta því fyrir mér að vera kvikindisleg og hringja í alla hennar síma og berja húsið að utan en svo dettur mér í hug að kannski sé konan bara ekki heima hjá sér á þessum sunnudagsmorgni.
Hver veit og ég ætla bara að leita að bíllyklum tölvunarfræðingsins og fara í bakaríið.
-------
Ég skrifaði færslu hér í gærkveldi og hún birtist ekki þó ég sjái hana undir ,,Edit Posts".
Skrýtið.
1 ummæli:
Sæl ferðalangur!
Hef nú ekki haft hugmyndaflug í að hringja (hm) en er búin að vera kíkja eftir þér á blogginu og ímynda mér að þú hafir verið utan þjónustusvæðis........
Er ekki allt blóðberg komið og farið og við ekki búnar að tína neitt?
Kveðja
Nespían
Skrifa ummæli