4. júlí 2007

Bruni og bólga

Ég er steinhætt að þora að líta í spegil, ég óttast það sem ég gæti séð þar næst.

Ég leit í spegil þegar ég kom heim á sunnudagskvöld og sá þar rautt og þrútið nef með rauð-þrútnum kinnum sitt hvoru megin en skjannahvíta rönd lá þvert yfir nefrótina yfir í augnkrókana, ennið var líka eldrautt með hvítri skárönd upp við hársrót.
Daginn eftir var þessi rauði litur orðinn svo glóandi að hann lýsti upp umhverfið og sviðinn í andlitinu og þó einkanlega á enninu truflaði daglegt líf mitt óþyrmilega. Það dró þó úr þessu smátt og smátt og í gærkvöld angraði mig lítið annað en örlítill sviði og kláði á enninu og enn voru skærrauðir blettir undir hvoru auga.
Í morgun vaknaði ég svo með óþægilega kláða tilfinningu umhverfis augun og fannst húðin vera að flagna af augnalokunum, sem var svo sem ekki furða eftir þessa íkveikju. Ég staulaðist fram á bað, leit i spegilinn og fannst ég heldur þrútin í andlitinu, bara krem á augnsvæðið og ákvað að ná mér í blað af Aloa Vera plöntu til að bera á mig.
Eftir sturtu og Aloa Vera áburð með pensímblandi leit ég aftur í spegilinn og við mér blast andlit með augnalokum sem voru orðin þreföld að þykkt og það var rétt svo að ég gæti lyft þeim nógu mikið upp til að sjá í spegilinn. Liturinn var svo út í fjólublátt og þegar við það bættust tveir eldrauðir blettir undir augunum og hvít rönd yfir nefrótina var sjónin orðin heldur óhugnaleg og ég velti því fyrir mér hvort ég gæti látið sjá mig utandyra í dag.
Ég lét mig þó hafa það að fara í vinnuna en þar hefði verið betra að vera með sólgleraugu til að sleppa við að svara sömu spurningunni aftur og aftur enda hafði ég lítið svar við þvi hvað hafði komið fyrir andlitið á mér. Eitt var ég þó viss um að þetta var ekki viský drykkju um að kenna, eins og einhver stakk upp á því ég drekk koníak en ekki víský.
Í kvöld eru augnlokin komin í nærri rétta stærð en mig klæjar enn.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hi Brunarúst...

Nafnlaus sagði...

Ji, ég sá þig bara komna inn á sjúkrahús með fyrstastigs bruna við þennan lestur, var á leið að kaupa blómin og mæta í heimsókn. Vonandi nær þetta að hjaðna í sólarleysinu sem á að vera næstu daga.

gilla