Ég er iðin við að blanda mér í það sem mér kemur ekki við, þess vegna bauðst ég til að fara með Kennaranum og vera honum til halds og trausts meðan hann ásamt Rafvirkjanum og Matráðskonunni gengju frá búslóð foreldra sinna sem hvíla nú hlið við hlið aftur eftir tuttugu og sjö ár.
Ég sá svo auðvitað um að pakka hinu og þessu inn í dagblöð og raða í kassa og þegar Rafvirkinn lagði leið sína á háaloftir gat ég ekki stillt mig um að príla upp í stigann og líta þetta marg umrædda háaloft augum.
Mér hefur ábyggilega ekki verið ætlað að snuðra í neinu þar því þegar ég lagði olbogana upp á loftskörina og leit í kringum mig losnaði stiginn úr festingunum á veggnum og ég dunkaði niður með miklum skarkala en hafði sem betur fer tak á skörinni og hékk þar og náði svo með tánum niður á stigann sem skorðaðist fastur undir hillurekka á hliðarvegg.
Ég slapp frá þessu með skrekkin, svarbláan marblett á síðunni og blá rönd á innanverðum framhandleggnum.
Ég er að velta því fyrir mér hvort ég þurfi að vera í langermabol á mánudaginn í vinnunni svo sögur um heimilisofbeldi fari ekki á kreik í reykpásunum hjá vinnufélögunum. Ég hef fengð fréttir af töluverðu hugmyndaflugi á svölunum.
Annars kem ég sjaldan öðruvísi en skreytt hinum ýmsustu marblettum þegar ég hef lagt leið mína á Austurlandið. Eftir vorverkin verður fóki starsýnt á lærin á mér ef ég voga mér í laugarnar en þá bera þau merki ofbeldis úr fjárhúsunum þegar oft á tíðum óþægilega oddkvöss hornin á fénu stingast í mig þegar ég þarf að draga það á milli og nú bætist þetta við.
Eins gott að ég er orðin of gömul til að barnaverndarnefnd verði dregin í málið.
Ég náði svo að lesa Konungsbók Arnalds Indriðasonar á heimleiðinni í dag og varð stórhrifin af því að höfundurinn skuli nota föður sinn og aðrar alvöru pesónur og atburði í sögunni. Það kviknaði hjá mér löngun til að lesa fornsögurnar okkar og nú man ég að ég ætlaði að fá lánaða Sögur frá Skaftáreldum í bókahillunum heima en gleymdi því að sjálfsögðu.
Ætli ég geti ekki farið að fá vinnu við að lesa bækur?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli