4. apríl 2007

Miðvikudagurinn langi.

Ég á Góu páskaegg nr. 6, á því situr gulur ungi með bláann hatt á höfðinu.
Ætli ég geti fundið einhvern til að borða það fyrir mig eða ætti ég að detta í súkkulaðijukk um páskana?
-----------------
Veðurhorfur næstu daga hljóma ekki mjög spennandi. En það þarf þá bara að vera á fjórhjóladrifnu og taka með sér hlý föt ef mar ætlar að ganga á Austfjarðarfjöll.
Ég held nú að ég nenni ekki að vera mætt klukkan sex á páskadagsmorgni við Norðfjarðarvitann, til þess þarf ég að fara eldsnemma á fætur, en óneitanlega kitlar þessi klausa svolítið ,,Hefðbundin hátíðarganga út í Páskahelli í Norðfirði. Verður sólardans 2007?”
--------------
Esjugöngu dagsins er frestað til morguns, þar sem ég og Sjúkraliðinn verðum bara tvær, allir aðrir eru farnir eða eru að fara í páskaferðalög, ætlum við að labba í fyrrmálið og þá get ég unnið fram á kvöld og hún farið í Bónus eftir vinnu.

Engin ummæli: