Ég skrapp á smá fund í kvöld og hitti þar þann alstærsta kött sem ég hef augum litið, synd að vera ekki með myndavélina.
Eftir smá spjall við köttinn fór ég að finna til á mótum lungna og barka við innöndun og þegar við það bættist nefrennsli sá ég af hyggjuviti mínu að annað hvort væri ég með ofnæmi fyrir þessum jólaketti í dulargervi eða ég væri að verða kvefuð.
Þar sem ég hef ekki haft ofnæmi fyrir kattardýrunum á mínu heimili hallast ég frekar að kvefinu.
Þetta stefnir fellagöngum helgarinnar og Grafarvogshádegishlaupinu í hættu en ef ég þarf endilega að verða kvefuð er gott að ljúka því af fyrir 30.apríl.
Lán í ólán eða hvað?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli