12. apríl 2007

Úff, púff.

Aldeilis sérdeildis fjörleg þessi síða undanfarna daga (eins og eigandinn auðvitað) en þegar maður hefur nægan tíma til að skrifa í dagbók er tölvan og netsambandið hvergi nálægt og jafnvel ekki blað og penni heldur.
Annars er ég komin heim úr snjómullunni sem var á Austurlandi um páskana, þar varð lítið úr gönguferðum en því meira úr æfingarmyndatökum á myndbandsupptökuvélina (sem ég þarf að kaupa stærri rafhlöðu í áður en ég fer í Kákasusferð), og fjárhúsferðum og fjárumönnun.
Annars finnst mér svona snjómulla í litlum vindi og frostlausu veðri voða ljúft veður.
Það er austan átt og alda brotnar í brimtónum við fjöruna, við undirleik tjaldsins sem boðar vorið. Það rétt sér út á miðjan fjörð og upp í hlíðar, snjókorna hula breiðir rökkur yfir fjörðinn og þegar skyggir ber blágráan fjörðinn við blýgráann himinn og hvíta jörð með svarbláum skuggum þar sem þúfnakollarnir ná nærri því að rjúfa snjóþekjuna.
Himinn jörð og haf tóna uppáhaldslitina í litakassanum mínum, eða var það öfugt?
Svona mynd af firðinum er gott að draga yfir hugann eins og sængina upp yfir höfuð þegar svefninn vill ekki sækja mann heim.

Og ég er að verða of sein á fund!

Engin ummæli: