15. apríl 2007

Jæja,


það rignir í Azerbaijan en er komin uppstytta á Íslandi. Ég ætla að taka mér frí frá gönguferðum í dag og lofa stingjum og eymslum að líða úr vöðvafestum. Veit nú samt ekki nema Lónakotið veriði skoðað ef veðrið verður gott. Það er svo stutt gönguferð þangað en ef Esjan á að verða gengin upp að steini á miðvikudag er eins gott að hafa hægt um sig í smá tíma.
Ég ætla að snúa upp á handlegginn á yngra afkvæminu og fá hann til að setja upp forrit á heimatölvuna svo ég geti skoðað prufumyndirnar frá páskum og gærdeginum og lært betur á þessa blessaða sameign okkar. Það er amk. á hreinu að mér dugir myndbandstökuvélin sem myndavél líka, hún á að gefa meiri myndgæði en sú sem ég hef verið að nota.

Og hér er útsýnið af Grímmannsfellinu/Grímarsfellinu og annar ferðafélaginn.

Engin ummæli: