Ég var búin að lofa mér í ákveðna hluti í dag og er ekki að nenna því. Þarf að ná í bílinn minn niður í bæ þar sem hann stendur einn og yfirgefinn eftir að ég fór á Vín og skel, borðaði saltfisk, drakk hvítvín og koníak og kjaftaði fram á nótt.
Gott að eyða kvöldunum í svona en ósköp verður maður latur daginn eftir.
Já, svo fór ég í Baðstofuna í Laugum, þar sem ég þverneitaði að láta skanna augað í mér inn í eitthvað skráningarkerfi, sullaði þar í heitum og köldum pottum eimböðum og gufuböðum og fór svo í heitsteinanudd sem mér var boðið í.
Ég hugga mig við að gefandinn vann gjafakortið fyrir nuddinu í happdrætti því það er ekki fjórtánþúsund króna virði að fara í þetta, ekki einusinni þó nuddarinn sé ungur myndarlegur og massaður.
Baðstofan stóð samt fyrir sínu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli