Kominn sunnudagur og mesta brjálæðið að verða gengið yfir. Ég er orðin of gömul fyrir svona vinnutarnir en mér er mikð létt eftir að ég sá að ég er í mun betri málum í aukavinnunni en ég átti von á.
Þannig að nú er stefnan tekin á gönguferð, helst á Mosfellið svo Kolaportið til að leita uppi gömul kvennveski með sylgjum sem hægt er að nota á þetta sem ég hef verið að reyna að berja saman frá því fyrir jól. Þegar það er búið þarf ég að byrja á nýrri hönnun.
Svo það stefnir bara í dól og dútl þangað til mér finnst kominn tími til að vekja Sjúkraliðann upp af værum þorrablótsáfengissvefni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli