Ég held að mér sé ekki við bjargandi! En hvað sem öllum þessum verkefnum og nefndum, sem ég hef verið of dugleg við að taka að mér, líður ætla ég að fara inn í Þórsmörk á laugardaginn. Nú þarf að semja við Bifvélavirkjann um að ditta að bílnum.
Esjan og kaffi, eigum við að sjóða siginn fisk og saltað selspik í kvöldmatinn? Má reyndar ekki sjóða siginn fisk heima hjá mér! Svo þarf ég að búa til spil, mig vantar einhvern í það sem skrifar prentletur.
3 ummæli:
Allt þetta að sjálfsögðu.
Kemurðu með eða varstu sett óvart á kvöldvakt á laugarda og sunnudag.
kallamál?
Hvað annað gæti haldið þér frá jeppaferð í Þórsmörk.
Kom annars frá þér svört húfa með grænni nælu og fjólubláir fingravetlingar hérna inn?
Esjan og kaffi, eigum við að sjóða siginn fisk og saltað selspik í kvöldmatinn? Má reyndar ekki sjóða siginn fisk heima hjá mér!
Svo þarf ég að búa til spil, mig vantar einhvern í það sem skrifar prentletur.
Skrifa ummæli