18. maí 2005

Eins dauði er ekki ofan á brauð

Gullfiskurinn minn er dáinn og ég veitti honum nábjargirnar. Hann var eineygður svo það var ekki lengi gert. Var að spá í að nota hann í kattamat en hafði svo veglega útför í ruslafötunni.
Hefði kannski átt að grafa hann innan um páskaliljurnar í garðinu?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég samhryggist þér og er á því að hann hafi átt skilið að hvíla inn á milli páskaliljanna ferkar en matarafganga.

Gilla

Hafrún sagði...

Getið þið aldrei verið sammála?
En það er of seint að veita honum veglega útför ég fór út með ruslið áðan.