26. febrúar 2005

Í aumingjadeildinni

Þoli ekki að vera einhverstaðar mitt á milli þess að vera veik og heilbrigð og mikið óskaplega fer það í skapið á mér að dragnast um eins og aumingi án þess að vera almennilega lasin.
Verð að hætta að ganga um og urra á fólk í kringum mig. Enda svitna ég og fæ svima bara af þvi að urra.
Og hvers vegna í ósköpunum er aldrei neitt í sjónvarpinu um helgar sem mig langar til að sjá?

Engin ummæli: