13. október 2005

Ekki að gera sig

Þessi vinnumál mín eru ekki að fara eins og ég ætlaði en það er nú kannski rolugangur í mér að hrista ekki af mér eina vinnu eða svo. Það stefnir í að ég þurfi að fara að bera með mér bréfpoka til að anda í þegar mikið liggur við.
Er svo líka að hugsa um að fara út á land og kveðja gamlan mann sem ég er búin að þekkja í tæp 30 ár. Mig langar til að kasta á hann kveðju að skilnaði.

Engin ummæli: