14. nóvember 2010

Níu búnir, þrír eftir

Þá er þessi vinnuhelgin búin og ég er búin með 9 áfanga af 12. Í tölfræðinni lærði ég að reikna vegið meðaltal og ef ég væri ekki letingi af guðs náð notaði ég þá kunnáttu til að skoða árangur minn í náminu.

Tölfræðiprófið gekk bærilega og mér tókst að læra smávegis í námsbókinni á síðustu mínútunum í prófinu. Nógu mikið til að tryggja mér 60% árangur, kannski 70% og þar sem mér dugði 50% til að ná er ég sátt og sæl, bæði við prófið og að hafa ekki klárað aðhlusta á alla fyrirlestrana.

Nu taler jeg dansk í tíma og ótíma öllum sem umgangast mig til óblandinar ánægju. Að öllu gamni slepptu held ég að þau hafi tapað húmornum nýlega, ég sé enga aðra skýringu á þessum mæðusvip sem kemur á andlitin á þeim þegar ég byrja að syngja lagið sem við vourm að hlusta á í skólanum í dag. Nei, nei,  þetta er ekki leikskóli og ekki söngskóli.
Eftir að hafa svo eitt meira en hálfum deginum og öllu kvöldinu í að skipuleggja helgarferð til Århus er ég að þvi komin að bóka flug þangað með SAS.  Það vantar bara hásbreidd og fáeinar krónur upp á bókunina. Svona geta skólar verið varasamir.
Ég sé ekki fram á rólegar vikur til 14. des, til þess er ég farin að ryðga of mikið í dönsku málfræðinni, ætli ég verði ekki að gera hlé á skálsdsögulestri i bili. Allavega íslenskuskáldsögulestri.

Engin ummæli: