Helgarvaktn hófst á mætingu í óvissuferð austur á Flúðum og í henni fékk ég fyrirlestur um kirkjustaðinn í Hruna þar sem ég uppgötvaði hversu fáfróð ég er um land og sögu almennt. Skoðaði svo keramikverkstæði og beint úr því í gróðurhúsaskoðun á Hverarbakka þar sem ég viðaði að mér þekkingarbrotum um tómatarækt. Ég er líka fáfróð um ræktun tómata.
Samkoma með veislumat á hótelinu á Flúðum, rauðvín, brandý og hvítvín gerðu það að verkum að ég var framlág fram eftir sunnudeginum þó ég tæki mér Öskubusku til fyrirmyndar og væri komin inn á herbergi fyrir miðnætti og heim til mín fyrir hádegi.
Endaði svo helgina í matarboði hjá gömlum ferðafélögum og heimsborgurum sem ég fæ seint fullnóg af að hlusta á og ræða við um allt milli heima og geyma. Notalegt kvöld, með góðum mat og frábærum félagsskap.
Mig langar í skóla en fyrst þarf ég að gera svo margt sem krefst peninga að ég verð að vona að það komi eitthvað af viti út úr vinnuumleitunum í vikunni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli