8. september 2008

Fjallabaksleið-Langisjór





Skrapp á fjöll um helgina og ferðalagið gekk alveg óhappalaust fyrir sig, engin sprungin dekk í þetta skipitið.



Við kíktum aðeins undir húddlokið á Mússó og sáum þar að loftinntakið er ansi neðarlega. Ég væri ekki verr stödd á Vitörunni í vatnasulli hvað það varðar.



Keyrðum norður Faxasund, kíktum á Botlangalón, norður Breiðbak og suður í vatnsborðinu á Langasjó. Stundum það djúpt út i vatninu að bíleigandandum var um og ó. Það var samt að ástæðulausu því loftinntakið var vel yfir vatnsyfirborðinu. Það átti reyndar líka við um þann stóra sem keyrði á undan okkur en bílstjóranum tókst nú samt í einni ánni að gusa vatni inn á vélina i leikaraskap í miðri á en okkur öllum til mikils léttis heyrðist ekkert bank í vélinni og loftsían var tekin úr og vafin í handklæði til þerris.



Gistum í Skælingum seinni nóttina og keyrðum svo með Eldgjá í þoku og súld suður á Syðri- Fjallabaksleið þar sem sólin fór að skýna á okkur meðan við stoppuðum í Strútsskála og svo heim með nokkrum útúrdúrum.



Þetta var bara gaman.



Ég var nú samt svolitið mikið þreytt þegar ég kom heim í gærkveldi.

Engin ummæli: