21. apríl 2007

Taskan

Þar sem ég sat í djúpum þönkum yfir pökkunarlistanum mínum heyrði ég þungan dynk sem myndaðist við stökk kattarins ofan af sófabaki niður í opna ferðatöskuna mína. Þar hringaði hann sig saman og malar nú hástöfum sannfærður um að hér hafi hann eignast sitt einkarúm og flíspeysan mín sé rúmdína sérútbúin handa honum.
Ef ég fæ ekki af mér að vera harðbrjósta kona og henda honum upp úr töskunni gæti ég þurft að fá aðra lánaða. Eða bíða færis þegar hann fer í matardallinn og hlaupa með töskuna í felur.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehe sýnit þú verða að fórna þessari tösku og finna þér aðra mín kæra!