23. febrúar 2005

Og styttist enn

Vá hvað ég er búin að vera dugleg. Kláraði frá verkefnið sem hefur verið að bögga mig og ég ætlaði upphaflega að vera búin með fyrir 20. feb.
Skilaði bullinu sem ég tók að mér að berja saman og byrjaði að orkera bókamerkið. Verst hvað það vinnst hægt ég er nefnilega byrjuð á því næsta og kannski því þarnæsta í huganum. Verð að fá mér eitthvað við þessari maníu.
En jafnóðum og ég vinn niður listann minn bætist á hinn endann á honum. Svei því. Dóttirin dró upp það sem við ætluðum að gera fyrir ömmu hennar og afa strax í sumar og það eru síðustu forvöð að klára fyrir 1. mars. Úff.
En fátt er svo með öllu illt, ætli við undirbúum okkur þá ekki almennilega fyrir skráningarnar í vor þegar við verðum búnar að berja inn öll gögnin fyrir síðasta ár. Verðum klárar í sauðburðinn vopnaðar fartölvum og forritum.
Vonandi verður veðrið um helgina jafngott og þessa síðustu daga, ég er að hugsa um að heita á sjálfa mig að fara í langan göngutúr út fyrir malbikið ef veðrið verður gott á sunnudaginn. Mér finnst ég eiga það skilið!

1 ummæli:

Hafrún sagði...

Fyrir fjögur reikna ég með, annars fer maður aldrei neitt. Reyndar er styrktarsamkoma á sunnudaginn sem ég ætla á og er eftir að skipuleggja hvernig á að koma þessu heima og saman.