Hitt og þetta

16. ágúst 2013

Enginn tími fyrir gáfulega dagbókarpistla

Nei það er enginn tími til að skrifa misgáfulega netdagbókarpistla en það er nú samt lágmark að henda inn einum í mánuði! 
Ég er enn á Austurlandi, búin að fara á fjöll en lítið út í sjó, mikið að gera og veðrið truflar vinnulíf mitt, það styttist óðfluga í skólabyrjun og þó ég hlakki til haustannar væri ég alveg til í að vera hér í mánuð í viðbót. 

Hér var ég í sumar og ætla aftur næsta sumar. 

Fósturbarnið mitt vildi stundum fá að hjálpa til í vinnunni í sumar

En nú er það of stórt til að sitja á lyklaborði og fær auðvitað aldrei
að koma inn en einu sinni gerðum við undantekningu og þá fékk það
bláa hringi á báða fætur. Það má ekki fara á milli mála hver verður á ferðinni 
næsta sumar þegar fósturbörnin verða flutt að heiman í sjálfstæða búsetu 
niðri í fjöru. Ætli þau haldi þó ekki þeirri venju að koma heima að húsi og fá
sér fóðurbæti og andabrauð.  

Enn þá kann ungi litli að sitja í lófa en það er liðin tíð að hann komist
fyrir í annari hendi manns. 

1 ummæli: