Ég er að velta því fyrir mér að breyta titlinum á þessari bloggsíðu.
Ekki að það titilinn eigi eitthvað síður við en í upphafi ég er ennþá jafn sannfærð um að hér eigi orðin ,,Ærna mælir sá er æva þegir staðlausa stafi", sem hefur auðvitað svipaða merkingu og ,,Það bylur hæst í tómri tunnu", óskaplega vel við en stundum get ég ekki lengur lokað augunum fyrir þeirri sjálfsblekkingu sem ég lifi í og finnst þá titillinn LÍF Í SJÁLFSBLEKKINGU hæfa betur.
Einu sinni enn tók ég upp bók og taldi sjálfri mér trú um að ég ætlaði að fara að sofa eftir tvo eða þrjá kafla. Nærri lét að ég færi að sofa eftir tvo eða þrjá klukkutíma og það er ekki annað en ég á að venjast.
Ég er lestrarfíkill og lifi oftast í afneitun á því.
Reyndar var bókin sem ég var að lesa ekkert sérstaklega góð og skelfilega illa þýdd. Hún er svo illa þýdd að það hvarflaði að mér að þýðandinn væri kominn yfir nírætt og löngu hættur að fylgjast með daglegu málfari og lífi íslendinga. Það er eina skýringin á því að hann notar orðið nálgunarsvifting í stað orðsins nálgunarbann!
31. janúar 2010
29. janúar 2010
Kirkjuferð
Lífið er hverfult og enginn veit sína ævina fyrr en öll er.
Fyrir ekki svo löngu síðan, reyndar bara örstuttu á mælikvarða þjóðar hafði bandarískur her aðsetur á Miðnesheiðinni. Vera hans hér skipti þjóðinni í þrjár fylkingar, með og á móti og svo voru nokkrar hræður sem gátu ekki af einverjum ástæðu tekið afstöðu í málinu.
Þessar tvær fylkingar sem tóku afstöðu rökræddu, rifust, slógust, ortu ljóð, sungu og ábyggilega sitthvað fleira sem ég man ekki eftir. Sitt sýndist hverjum en eflaust hefur enginn séð það fyrir að herinn pakkaði bara saman einn daginn og yfirgæfi okkur.
Miðnesheiðin var örlítill hluti af Íslandi, hluti sem ekki tilheyrði þjóðinni sem byggir þetta land. Þetta frímerki var bandarískt í nokkra áratugi og þar lifði fólk herstöðvarlífi með öllu því sem því tilheyrir og ég, íbúa lands sem ekki hefur her nema þenna sem hann fékk að láni í 50 ár, hef litla sem enga innsýn í þann lífsmáta.
Ég veit þó að íbúar Vallarins höfðu kirkju, sjálfsagt predikaði þar herprestur og í dag ætla ég að sitja þar læra stærðfræði.
Lífið er stundum kómískt.

28. janúar 2010
Já og
þess ber að geta að ég enn geng ég daglega. Að vísu er vafamál með þriðjudagskvöldið, því þegar ég stóð við rúmstokkinn minn 00.40 aðfaranótt miðvikudags áttaði ég mig á að göngutúrinn hafði gleymst. Ég dreyfi mig að sjálfsögðu út og gekk í 20 mín um göturnar í nágrenninu, hafði einhvernveginn ekki áhuga á að ganga á göngustígnum meðfram fjörunni.
Þó það hafi í raun verið kominn miðvikudagur þessa nótt ætla ég að telja þennan göngutúr til þriðjudags.
27/27. bara nokkuð gott hjá mér þó ég segi sjálf frá.

Í kvíðakasti
Ég slysaðist til að opna fjarkennsluvefinn í gær og sá að stærðfræðikennarinn er búinn að setja inn öll verkefni lotunnar, með skiladagsetningum, glærum og öllu sem við á að éta. Ég fékk kvíðakast.
Ekki það að ég hafi áhyggjur af þvi að ráða ekki við stærðfræðina, mest af þessu sem kennt er í fyrri áfanganum var ég búin að taka fyrir rúmlega 15 árum. Það er kennsluumhverfið sem veldur mér þessum kvíða.
Þetta byggist allt up á því að fylgjast með á netinu, sjá hvenær verkefni eru komin inn, hvenær á að skila þeim og passa upp á alla þræði í einu. Vissulega eru margir sem læra 5 til 6 greinar í einu í svona umhverfi og spjara sig ágættlega, ég er bara með tvær, en ég er líka viss um að margir spjara sig ekki.
Ég er aðallega hrædd um að gleyma að fylgjast með, gleyma að skipuleggja mig og skila á réttum tíma.
Ég veit nefnilega sem er að vefjagigtinni hjá mér fylgir athyglisbrestur og einbeitingaskortur sem ég var laus við síðast þegar ég var í námi.
Að svo mæltu fór hún að hlusta á einn fyrirlestur á netinu og hætti blogg- og facebooklestri. Hmm.

23. janúar 2010
Heiðingjablótið
Að venju blótaði ég þorra með ásatrúarmönnum og læt það duga í þorrablótum þennan vetur.
Þetta var allt samkvæmt forskriftinni, súrmaturinn litið súr, hangikjötið vantaði, ásatrúarmenn vilja frekar reykt og saltað hrossakjöt og því miður kunnu veisluhaldararnir ekki að geyma hákarlinn. Hann hafði greinilega verið brytjaður niður og geymdur þannig, sennilega í plastílátum, í einhvern tíma og var farinn að taka í sig þetta remmubragði sem fylgir þannig geymslu.
Ætli það sé samt ekki best að sleppa fyrirlestri um meðhöndlun og verkun á hákarli í þetta skiptið.
Kvæðamenn voru á staðnum eins og venjulega, atriðin hafa þó oft verði betri og eitthvað fannst mér salurinn dauflegur í fjöldasöng. Þorvaldur stjórnaði söngnum eins og venjulega og mér finnst orðið ómissandi að hefja þorran með þvi að hlusta á hann syngja Þegar hnígur húm að þorra.
Ungur maður spilaði fyrir okkur á nefflautur og boga og söng barkasöng. Allt þetta hefur hann lært á youtube. Bæði að smíða og spila á þessi hljóðfæri. Reyndar er hæpið að kalla boga hljóðfæri en hann spilaði nú samt á hann.
Youtube er fróðleiksbrunnur um allt milli himins og jarðar, það hef ég líka uppgötvað en er stundum svolítið sein að kveikja á þvi að læra hlutina þar.
Það bjargaði mér frá því að eyða sexþúsund krónum í prjónanámskeið að þegar uppselt var á námskeiðið alveg fram í mars mundi ég eftir Youtube. Og sjá- þar var hægt að læra að prjóna tvo sokka á einn hringprjón. Einfalt mál þegar maður veit hvernig það er gert en ég er nú ekki viss um að þetta sé neitt fljótlegra.
Frá Youtube og aftur að þorrablóti. Ég held mig við að fara á þessi blót einu sinni á ári, borða súrmat sem uppfyllir ekki kröfur mínar um súran mat, vitandi að það mun vanta súran hval og hangikjöt en í ár átti ég bita af súrum hval í ísskápnum og tók hann með mér. Næst tek ég líka með mér hangikjötsflís, ég leyfi nefnilega öðrum að njóta sviðanna. Þau borða ég bara á sviðamessum.
Þessi blót eru orðin nærri því ómissandi hluti af tilverunni og þó dagskráin sé upp og ofan sé ég og heyri skemmtiatriði þarna sem ég fæ ekki annar staðar. Ég er svo forn að mér finnst yndislegt að hlusta á kvæðamenn og aðra einkennilega tónlistarmenn.
Kannski ég gangi bara í þetta blessaða félag einhverntíma.

18. janúar 2010
Er að spá
í að fara á myndakvöld hjá FÍ á miðvikudaginn þó ég sé engin skíðamanneskja. Það hljóta að vera flottar myndir þar.
Eða hvað?
Eða hvað?
Enn að
labba og þrátt fyrir hálku og myrkur og stundum myrkur, rigningu og rok hefur mér tekist að halda mér við lámarkstíma sem er 20 mín. á dag en oftast verið í rúman hálftíma.
Það er best að hafa ekki miklar væntingar eða plön um Helgafells- eða Keilisgöngur á næstu vikum en það er allt í lagi að vonast eftir að ná eins til tveggja tíma göngur út í móa fljótlega.
Skólinn byrjaði um helgina og eins og ég átti von á slepp ég létt frá fyrsta faginu. Upplýsingatækni snýst þarna um ritvinnslu og töflureiknin og það eru ekki fög sem ég er að sjá í fyrsta skipti. Það er samt alltaf hægt að bæta við kunnáttuna og nú þyrfti ég að setja saman stundaskrá fyrir vinnu, nám og töluvleiki og fara eftir henni.
Það vantar alveg sjálfsaga og skipulagshæfileika í genin í mér.

13. janúar 2010
Faust
Við mæðginin skelltum okkur á prufusýningu á Faust í dag.
Ég gleymdi auðvitað að kynna mér hvaða leikarar yrðu á fjölunum í þessari sýningu og sat því þarna og velti vöngum yfir því hvaða fólk þetta væri sem var að hoppa um fjalir, snúrur og kaðla. Ég þekkti með vissu einn!
Leikara Íslands þekkti ég ekki einu sinni í sínu gerfi. Ég meina það, maðurinn hefur leikið í flest öllum bíómyndum sem hafa veri framleiddar á Íslandi undnfarin ár og ég þekkti hann ekki á sviðinu.
Hilmir Snær var svo sem ekki mjög líkur sjálfum sér þarna en mikið helv. tókst honum vel upp. Það er auðvitað ekki að ástæðulausu sem hann er í hverri myndinni á fætur annari.
Burtséð frá því hvort ég þekkti leikarana eða ekki var sýningin stórgóð.
Að öðru leyti hefur dagurinn farið í að gera sem minnst og samviskan nagar og nagar. Meira nagdýrið þessi samviska!
Ég er búin að komast að því að samviskan er margþætt því ég hef bæði góða samvisku og slæma eftir daginn. Dagurinn minn er ekki á enda fyrr en ég legg höfuðið á koddann svo þegar ég uppgötvaði rétt eftir miðnætti að ég hafði vegna net, töluleikja og leikhúsáhuga gleymt að fara út og hreyfa mig stökk ég út í rigninguna og gekk nokkurnveginn mína venjulegu leið.
Þessir æðarblikar voru þá ekki að spóka sig á Kópavoginum í rigningunni í kvöld heldur hitti ég þá þar í gær. Ég held að einn þeirra hafi verið að vonast eftir brauði.
Mörgum dögum seinna: Ég þekkti ekki NEINN leikara í sýningunni með vissu. Aldrei þessu vant hafði ég ekki rétt fyrir mér! Fúlt.
.
Ég gleymdi auðvitað að kynna mér hvaða leikarar yrðu á fjölunum í þessari sýningu og sat því þarna og velti vöngum yfir því hvaða fólk þetta væri sem var að hoppa um fjalir, snúrur og kaðla. Ég þekkti með vissu einn!
Leikara Íslands þekkti ég ekki einu sinni í sínu gerfi. Ég meina það, maðurinn hefur leikið í flest öllum bíómyndum sem hafa veri framleiddar á Íslandi undnfarin ár og ég þekkti hann ekki á sviðinu.
Hilmir Snær var svo sem ekki mjög líkur sjálfum sér þarna en mikið helv. tókst honum vel upp. Það er auðvitað ekki að ástæðulausu sem hann er í hverri myndinni á fætur annari.
Burtséð frá því hvort ég þekkti leikarana eða ekki var sýningin stórgóð.
Að öðru leyti hefur dagurinn farið í að gera sem minnst og samviskan nagar og nagar. Meira nagdýrið þessi samviska!
Ég er búin að komast að því að samviskan er margþætt því ég hef bæði góða samvisku og slæma eftir daginn. Dagurinn minn er ekki á enda fyrr en ég legg höfuðið á koddann svo þegar ég uppgötvaði rétt eftir miðnætti að ég hafði vegna net, töluleikja og leikhúsáhuga gleymt að fara út og hreyfa mig stökk ég út í rigninguna og gekk nokkurnveginn mína venjulegu leið.
Þessir æðarblikar voru þá ekki að spóka sig á Kópavoginum í rigningunni í kvöld heldur hitti ég þá þar í gær. Ég held að einn þeirra hafi verið að vonast eftir brauði.Mörgum dögum seinna: Ég þekkti ekki NEINN leikara í sýningunni með vissu. Aldrei þessu vant hafði ég ekki rétt fyrir mér! Fúlt.
.
11. janúar 2010
Tjara og fiður
Einu sinni var óþjóðalýð velt upp úr tjöru og fiðri og í annan tíma voru konur krúnurakaðar fyrir að vera óþjóðlegar. Ég hef þó ekki heyrt af því að íslendingar notuðu þessar aðferðir við þá sem dómstólar götunnar dæmdu seka.
Það getur skýrst af því að langt fram yfir næst síðustu aldamót bjuggum við við gatnakerfi fjár- og reiðgatna og dómstólar götunnar fóru því hægt yfir.
Nú þykir mörgum í góðu lagi að sletta málningu á þá sem hafa verið dæmdir sekir af fyrrgreindum dómstólum. Mætasta fólk sem aldrei dytti í hug að sletta málningu á eigur annarra getur þó réttlætt skemmdarverkin hjá þeim ofstopafullu.
Hvaða munur er á að eyðileggja eignir meintra útrásarvíkinga og eignir þjóðarinnar? Siðferðilega enginn, það er bara magnið sem er annað.
Það hefur komið fyrir að saklausir menn hafa verið dæmdir í öllum réttarríkjum, jafnvel dæmdir til dauða og teknir af lífi.

Samsviskan nagar
Ætli i samviskulausu fólki líði ekki bara þokkalega vel. Það vaknar ábyggilega ekki með andfælum á morgnana með hnút í maganum yfir að vera ekki búið með allt sem þurfti að vera búið að gera fyrir þennan morgun.
Ég þarf að halda vel á spöðunum næstu daga. Mín eina huggun í þessari óreiðu allri sem ég er búin að skapa í kringum mig er að ég kemst létt frá fyrsta faginu í skólanum.
Í upplýsingatækninni er kennt að nota Word og Excel og ég held að ég þurfi ekki að eyða löngum tima í að læra á þau forrit.
Auðvitað tekur alltaf tíma að gera verkefnin, sérstaklega ef krafan er að fá ekki undir 9.
Ég er ekki með kröfur upp á 10 til 11 eins og Sjúkraliðinn gerir í sínum prófum.

9. janúar 2010
Dagatal
2011
Með því að kvitta fyrir nærri því hverri göngu í fyrra tókst mér að ganga nærri daglega fram í maí. Ég ætla að prófa þetta aftur. Það virðist koma í veg fyrir sviksemi og linkind.
Hringur A er 15 til 20 mínútna rölt í hverfinu. Hringur B er u.þ.b. hálftími.
04.01.2011. 4/4
03.01.2011. 3/3.
02.01. 2011. 2/2. Hringur A.
Nýjársdagúr 1/1: Rölt niður að Lónakoti.

03.02.2011-34/34- Hringur A með útúrdúr í næstu matvöruverslun, það var orðið kaffilaust!
02.02.2011-33/33- Hringur A móti hárbeittum, láréttum klessingi sem tróð sér inn í úlpuermarnar og reif upp svitaholurnar í andlitinu.
24.01.2011-24/24- Bókasafnið og stóra hringinn heim eftir það.
23.01.2011-23/23- A Þetta er svo tilbreytingarlaust að ég nenni því varla lengur (að skrifa sko)
22.01.2011-22/22- Hringur A
21.01.2011-21/21- Hringur A
15.01.2011-15/15- Fór út í björtu og rölti hring A. Það þarf nú að fara að breyta þessari rútínu.
14.01.2011-14/14- Komst út fyrir myrkur og hringur A
13.01.2011-13/13- Hringur A
10.01.2011-10/10- Hringur A
09.01.2011- 9/9- Vegna skelfilegrar upplifunar af bóklestri dagsins treysti ég mér ekki að ganga seint um kvöld i myrkri niðri við sjávarmál. Labbaði samt í 20 mín. um upplýstar götur íbúðahverfisins og náði því áður en nágrannarnir komust allir í nætur ról. Það er stundum gott að sjá öðru fólki bregða fyrir i bíl eða á göngu seint um kvöld.
08.01.2011- 8/8- Hringur A
07.01.2011- 7/7- Hringur A. Skóli og leti en frostið hefur minnkað og ég náði einum hring fyrir miðnætti.
06.01.2011- 6/6- Hringur A. Gaddur og rok en hvað er ekki hægt í góðri dúnúlpu.
05.01.2011- 5/5-Frá Bílamóttökunni í Eimskip að Húsa. í Skútuvogi. Timi: hef ekki grænan alla vega 20 mín.
04.01.2011- 4/4- Hringur A + lóð
03.01.2011- 3/3- Hringur A
02.01.2011- 2/2- Hringur A.+ lóð.
01.01.2011- 1/1- Nýjársdagur. Rölt niður að Lónakoti
Ég er að hugsa um að gera listafærslu og færa í hana út árið. 365 sinnum!
Þessa átta daga sem eru liðnir hefur mér tekist að fara út að ganga á hverjum degi og það í 20 til 30 mínútur.
Flestum þætti þetta ekki mikið afrek en það er það fyrir mig því undanfarin 2,5 ár hafa allar tilraunir mínar til að koma mér upp gönguprógrammi endað með óþolandi verkjaköstum í vöðvafestum sem hafa haldi fyrir mér vöku marga nóttina. Nú finn ég lítið sem ekkert fyrir þessu (7-9-13) og ætla að halda áfram og koma mér í klukkutímagönguprógramm fyrir jafndægri á vori.
Þess vegna verður listi hérna fyrir mig til að geta horft á og gortað með sjálfir mér að dugnaðinum.
Ef ég þarf að gefast upp ... so ég er allavega búin með 8/8
Kannski ég breyti þessu bara í dagbók. Þá get ég kannski, ég segi bara kannski, rifjað upp eftir árið hvað gerðirst. - Og skrifað annál :-Ö
63-3. mars og nú er ég búin að tína tölunni. Labbaði samt minn venjulega hring áðan.
62-2.3 Ég fikra mig niðurá við og set inn það sem ég man. Ég man bara einn dag aftur í tímann og þann dag labbaði ég mikilli ofankomu um eitt leytið aðfaranótt 3. mars. Ég kýs þó að kalla þetta göngutúrinn 2.3.
61-1.3. Breytti til og gekk lámarkshringinn í dagsbirtu. Sólskini meira að segja en þvílíkur krapasvelgur á götunum.
60-28.2
59-27.2
58-26.2
57-25.2
56 -24.2
55-23.2
54-22.2
53-21.2
52/52 og 21.febrúar
51/51 Laugardagur 20. febrúar og vinnuhelgi í skólanum.
50/50
49/49
48/48
47 -17. feb. 40. mín hringurinn í fylgd BN, frost og skólskin
46- 16. feb. 20. mín kvöldrölt
45-15. feb. 20. mín kvöldrölt
45/45-14. feb. 20. mín. Tvær göngur einn daginn kalla á rólegheit næsta dag.
44-/44- Laugardagur 13.feb Merkilegur dagur fyrir þá sök að hann var tveggja göngutúra dagur. Í morgun alveg upp að tjörn og svo 20 mín hringurinn um 10 leytið í kvöld. Bara nokkuð ánægð með mig. Svo spillir ekki fyrir að hornafræðin er að rifjast upp og ég að ná áttum í henni.
43/43
12.feb Safnanótt og gigtardagur, kíkti samt í Perluna og Víkina með gamla manninn sem varð óvænt draghaltur og gat því lítið gengið um. Tók lámarks göngutúr seint um kvöldið.
42/42-
11. feb. 20 mín hringurinn
41/41-
10.feb. hálftíma morgunganga.
40/40-
9.feb. Hálftíma morgunganga
39/39-
8. feb. 20 mín hringurinn
38/38-
7 feb.Nú eru dagarnir svo sannarlega farnir að renna út í eitt og ég þarf að athuga dagatalið til að vita hvaða dagur er. Venjulegi 20 mín hringurinn klukkan hálf tólf, frostlaust og þurrt.
37/37- 6/feb. Venjulegi 20 mín hringurinn um miðnætti. Dagurinn slæmur en lagaðist þegar á leið. Seta yfir náminu í nokkra tíma kemur strax fram í verkjum í mjöðmum svo það er geinilegt að það er atvinnuleysið sem veldur betri heilsu þessar síðustu vikur. Því er nú ver.
36/36 5.feb. Hlaupið út um miðnætti í frosti og roki um ljóslausan göngustíg. Háflóð á stórstraumsfjöru.
35/35 4.feb. Bókasafnið búðin og heim. Frost og vindur og Vitafélagið með fræðslu
34/34 3. feb. Bókasafnið og stóri hringurinn
33/33-2.2 Samhverfudagurinn og þriðjudagur. Gengið á Seltjarnarnesinu
32/32 og fyrsti febrúar
---------------------------------------------------------------------- Janúar búinn
31/31 Þetta verður gloppótt ef ég skrifa ekki hér inn í heila viku. en ég labba aldrei minna en 20 mín svo ég skrifa það bara inn á þá daga sem ég er að gleyma að kvitta fyrir göngunni.
30/30 -20 mín hringurinn
29/29 -20 mín hringurinn
28/28- 20 mín hringurinn.
27/27- Tók stóra hringinn (45 mín) ætli ég verð ekki að fara að aðgreina þá með þessu móti. Tannlæknadeildin
26/26- Hljóp út rúmlega tólf að miðnætti í skítakulda og rölti um göturnar í nágrenninu.
25/25- hmm. þetta venjulega ég man ekki hvað stór hringur. Ég þarf greinilega að skrifa oftar.
25/25- Tuttugu mín. hringurinn
24/24- Hálftíma hringurinn
23/23- Bókasafnið-matvörubúðin í roki og rigningu. Gamla úlpan rétt svo vatnsheld ennþá.
22/22- Hljóp 20. mínútna hringinn í flughálku um kl. 18, alveg á síðasta snúningi fyrir þorrablótið.
21/21- 20 mínútna hringurinn í hífandi roki. Varla stætt á göngustígnum fyrir roki en engin hálka, aldrei þessu vant, bara sjórok og voða hressandi að fara út í svona veður. (ræktin með GVÓ í morgun!!)
20/20- Rölti á bókasafnið til að skila og svo niður með Hafnarfjarðarvegi og stóra hringinn.
19/19- Eitthvað var gengið en ef ég skrifa það ekki niður á hverjum degi þa´.....
18/18- Hálftíma Kópavogshringurinn. Flughált en náði að rölt fyrir myrkur.
17/17- Var skilin eftir á Bakkabrautinni og rölti heim í myrkri og hálku. Hverjir hvarta undan snjó og frosti? Ekki ég!
16/16- Óttarstaðir og bæirnir í Hraununum eftir skóla.
15/15- Venjulegur Kópavogshringur í myrkri og rigningu. Góðar regnbuxur yfir náttbuxunum er alveg að gera sig. Fyrsti dagur í Keili.
14/14- Lét nægja að rölta upp á bókasafn í hálkunni, ég held samt að það hafi tekið 20. mín vegna færðarinnar. Hálka!
13/13- Það var eiginlega kominn 14 en ég tel það 13 úr því ég stökk út fyrir svefninn. Rok og rigning!
12/12- Enn í Kópavoginum en stækkaði hringinn austur undir Hafnarfjarðarveg OG tók myndir.
11/11- Sjúkraliðinn og leiðbeinandinn bankaði upp á og við löbbuðum upp að kirkju. Kalt! Brr, frost og vindur.
10/10 - Kópavogur. Ég hljóp út rétt fyrir miðnætti til að missa ekk einn dag úr!
9/9-Kópavogur og áætlunin um að breyta til komst ekki til framkvæmda
8/8-Kópavogur- og á morgun held ég að ég verði að breyta til og fara út fyrir Kópavoginn.
7/7-Kópavogur
6/6-Kópavogur
5/5-Kópavogur
4/4-Kópavogur
3/3-Kópavogur
2/2- Kópavogur
1/1- Lónakot
Með því að kvitta fyrir nærri því hverri göngu í fyrra tókst mér að ganga nærri daglega fram í maí. Ég ætla að prófa þetta aftur. Það virðist koma í veg fyrir sviksemi og linkind.
Hringur A er 15 til 20 mínútna rölt í hverfinu. Hringur B er u.þ.b. hálftími.
04.01.2011. 4/4
03.01.2011. 3/3.
02.01. 2011. 2/2. Hringur A.
Nýjársdagúr 1/1: Rölt niður að Lónakoti.
2011
Með því að kvitta fyrir nærri því hverri göngu í fyrra tókst mér að ganga nærri daglega fram í maí. Ég ætla að prófa þetta aftur. Það virðist koma í veg fyrir sviksemi og linkind.
Hringur A er 15 til 20 mínútna rölt í hverfinu. Hringur B er u.þ.b. hálftími.
og eftir 15. febrúar bættist við hringur C sem er ekki nema 10 mín.
31. júlí.
Kominn tími á að taka sér tak og hreyfa sig aftur. Það má sníða sér stakk eftir vexti og labba út á horn og aftur til baka. 20 metra eða svo ef ekki vill betur til. (Jamm, skv. fyrirmælum læknisins. Það þarf stundum að sparka aðeins í fólk)
Ég labbaði hring A og stoppaði á hverjum bekk. Þeir eru bara tveir en hefðu mátt vera þrír. Ég tók ekki tímann, geri það kannski næst. Tíminn skiptir svo sem ekki öllu máli heldur að framkvæma.
18. apríl. Hætt þessu í bili vegna aukaverkana krabbameinslyfja og heilsuleysis. Stundum þarf maður að viðurkenna vanmátti sinn.
11.04.2011- 93/99ekkert labb og búin að sleppa tveimur dögum í röð, þetta er ekki að gera sig. En lyfjagjöf í dag og þá m. vera latur.
03.04.2011-92
02.04.2011- 91
24.03.2011-83
23.03.2011-82
22.03.2011-81

12.04.2011- 94 og 95 af 100. Búin að ná þessu niður í fimm göngutúra skróp aftur. Það gera sterarnir. Fór í grasagarðinn og svo hring A fljótlega eftir að ég kom heim.
11.04.2011- 93/99ekkert labb og búin að sleppa tveimur dögum í röð, þetta er ekki að gera sig. En lyfjagjöf í dag og þá m. vera latur.
10.04.2011- 93/98 Kom heim úr bústað og fermingarveislu og treysti mér ekki út um miðnættið. Sjónvarpsgláp og töluh.!
09.04.2011- 93/97 Göngutúr í rigningu og roki austur við Búrfell. Gleymdi regnfatnaði og þetta var eins stutt og hægt var. 17 mín.
08.04.2011-92/96 Föstudagur og sumarbústaðaferð, sveikst um göngutúrinn en fór í heitapottinn.
07.04.2011- 92/95 Hringur A.
07.04.2011- 92/95 Hringur A.
06.04.2011-91/94 Þegar hér er komið sögu er ég buin að gleyma allt of lengi að færa inn í bókhaldið, ég er þó með það á hreinu hvað ég er búin að missa marga daga úr en vona bara að þetta sé rétt talið hjá mér. (þriggja daga skróp hingað en man ekki hvaða daga)
05.04.2011- 93
02.04.2011- 91
01.04.2011-90
31-03-2011-89
30-03-2011-88
28.03.2011-87
27.03.2011-86
26.03.2011- 85
25.03.2011-84
24.03.2011-83
23.03.2011-82
22.03.2011-81
21.03.2011-80 Lyfjagjöf, bókhaldið í rugli og ábyggilega ekki labbað þennan dag.
20.03.2011-79
19.03.2011-78
18.03.2011-77
17.03.2011-76
16.03.2011-75
15.03.2011- 71
14.03.2011- 72/73- Hringur A í rigningu og roki (veðrið reynar aðeins að ganga niður og allur snjór farinn)
13.03.2011- 71/72- Hringur A (sunnudagur) Fallegt vetrarveður og allt hvítt)
12.03.2011- 70/71- Hringur A snjór og frost.
11.03.2011- 69/70- Hringur A snjór og frost
10.03.2011- 67-68/69 -Með Ljósinu í Laugardalnum og hringur A seinnipartin (fimmtudagur)
09.03.2011- 66/68- Hringur A snjór og frost
08.03.2011- 65/67- Ljósganga í Laugardalnum (óvart, færðin og veðrið svo slæmt að ég missti af yoga, góð ganga í mikilli snjókomu)
07.03.2011- 64/66- Hringur A
06.03.2011-63/65- Hringur A
05.03.2011- 0/64 - engin ganga
04.02.2011-62/63- Hringur A. Heiðskýrt, Óríon lágt á lofti yfir Keili en Karlsvagninn beint yfir höfði mér.
03.03.2011-61/62- Hringur A
02.03.2011-60/61- Hringur A
01.03.2011-59/60- Hringur A
28.02.2011-58/59- Hringur A
27.02.2011-57/58- Hringur A
26.02.2011-0/57- Of slöpp til að fara út, ég hefði ekki komist út á horn nema á fjórum fótum.
25.02.2011-56/56- Hringur A
24.02.2011-55/55- Hringur A Laus við drenin og timabært að auka við sig aftur.
23.02.2011-54/54- Hringur C
22.02.2011-53/53- Hringur C
21.02.2011-52/52- Hringur C
20.02.2011-51/51- Hringur C
19.02.2011-50/50- Fram og til baka á göngustígnum
18.02.2011-49/49-Bergstaðastræti frá LHÍ yfir á Skólavörðustíg. Kulda næða í miðbænum þó sólin vermi í skjóli.
17.02.2011-48/48- Nokkrir metrar eftir göngustígnum. (með akstri að gönguleiðinni)
16.02.2011-47/47- Fram og tl baka eftir stéttinni framan við kvennadeild landspítala
15.02.2011-46/46- 10 mín. labb við sjóinn í undir fallegum stjörnubjörtum morgunhimni.
14.02.2011-45/45- Hringur A
13.02.2011-44/44- Hringur A
12.02.2011-43/43- Hringur A
11.02.2011-42/42- Hringur A
10.02.2011-41/41- Hringur A
09.02.2011-40/40- Hringur A Geng ótrufluð fram í næstu viku en þá er hætt við að eins og einn dagur fall út.
08.02.2011-39/39- Hringur A Held mig við þetta hvað sem tautar og raular en það var sjórok á göngstígnum.
07.02.2011-38/38- Hringur A. og Skógarhlðiðin
06.02.2011-37/37- Hringur A
05.02.2011-36/36- Hringur A
04.02.2011-35/35- Hringur A
03.02.2011-34/34- Hringur A með útúrdúr í næstu matvöruverslun, það var orðið kaffilaust!
02.02.2011-33/33- Hringur A móti hárbeittum, láréttum klessingi sem tróð sér inn í úlpuermarnar og reif upp svitaholurnar í andlitinu.
01.02.2011-32/32- Hringur A. Þessi verður að duga fram yfir próf en þá stefni ég líka á að stækka hann.
31.01.2011-31/31- Hringur A
30.01.2011-18/18- Hringur A og gleymdi mér til klukkan 1 svo eiginlega voru þetta tvær göngur 31. jan.
29.01.2011-17/17- Hringur A
25.01.2011-25/25- Bókasafnið og aðeins minni hring en í gær. Svarta þoka og sést rétt grilla í ljósin á Arnarnesinu. 28.01.2011-31/31- Hringur A
27.01.2011-18/18- Hringur A
26.01.2011-17/17- Hringur A
24.01.2011-24/24- Bókasafnið og stóra hringinn heim eftir það.
23.01.2011-23/23- A Þetta er svo tilbreytingarlaust að ég nenni því varla lengur (að skrifa sko)
22.01.2011-22/22- Hringur A
21.01.2011-21/21- Hringur A
20.01.2011-20/20- Hringur A
19.01.2011-19/19- Hringur A
18.01.2011-18/18- Hringur A
17.01.2011-17/17- Hringur A
16.01.2011-16/16- Kona sem á ekki brodda þarf að fara varlega á svona kvöldum. Læddist niður á göngustíg og gekk svo meðfram honum (ágrasinu) fram og til baka þar til markmiði dagsins var náð.15.01.2011-15/15- Fór út í björtu og rölti hring A. Það þarf nú að fara að breyta þessari rútínu.
14.01.2011-14/14- Komst út fyrir myrkur og hringur A
13.01.2011-13/13- Hringur A
12.01.2011-12/12- Hringur A
11.01.2011-11/11- Hringur A10.01.2011-10/10- Hringur A
09.01.2011- 9/9- Vegna skelfilegrar upplifunar af bóklestri dagsins treysti ég mér ekki að ganga seint um kvöld i myrkri niðri við sjávarmál. Labbaði samt í 20 mín. um upplýstar götur íbúðahverfisins og náði því áður en nágrannarnir komust allir í nætur ról. Það er stundum gott að sjá öðru fólki bregða fyrir i bíl eða á göngu seint um kvöld.
08.01.2011- 8/8- Hringur A
07.01.2011- 7/7- Hringur A. Skóli og leti en frostið hefur minnkað og ég náði einum hring fyrir miðnætti.
06.01.2011- 6/6- Hringur A. Gaddur og rok en hvað er ekki hægt í góðri dúnúlpu.
05.01.2011- 5/5-Frá Bílamóttökunni í Eimskip að Húsa. í Skútuvogi. Timi: hef ekki grænan alla vega 20 mín.
04.01.2011- 4/4- Hringur A + lóð
03.01.2011- 3/3- Hringur A
02.01.2011- 2/2- Hringur A.+ lóð.
01.01.2011- 1/1- Nýjársdagur. Rölt niður að Lónakoti
Ég er að hugsa um að gera listafærslu og færa í hana út árið. 365 sinnum!
Þessa átta daga sem eru liðnir hefur mér tekist að fara út að ganga á hverjum degi og það í 20 til 30 mínútur.
Flestum þætti þetta ekki mikið afrek en það er það fyrir mig því undanfarin 2,5 ár hafa allar tilraunir mínar til að koma mér upp gönguprógrammi endað með óþolandi verkjaköstum í vöðvafestum sem hafa haldi fyrir mér vöku marga nóttina. Nú finn ég lítið sem ekkert fyrir þessu (7-9-13) og ætla að halda áfram og koma mér í klukkutímagönguprógramm fyrir jafndægri á vori.
Þess vegna verður listi hérna fyrir mig til að geta horft á og gortað með sjálfir mér að dugnaðinum.
Ef ég þarf að gefast upp ... so ég er allavega búin með 8/8
Kannski ég breyti þessu bara í dagbók. Þá get ég kannski, ég segi bara kannski, rifjað upp eftir árið hvað gerðirst. - Og skrifað annál :-Ö
63-3. mars og nú er ég búin að tína tölunni. Labbaði samt minn venjulega hring áðan.
62-2.3 Ég fikra mig niðurá við og set inn það sem ég man. Ég man bara einn dag aftur í tímann og þann dag labbaði ég mikilli ofankomu um eitt leytið aðfaranótt 3. mars. Ég kýs þó að kalla þetta göngutúrinn 2.3.
61-1.3. Breytti til og gekk lámarkshringinn í dagsbirtu. Sólskini meira að segja en þvílíkur krapasvelgur á götunum.
60-28.2
59-27.2
58-26.2
57-25.2
56 -24.2
55-23.2
54-22.2
53-21.2
52/52 og 21.febrúar
51/51 Laugardagur 20. febrúar og vinnuhelgi í skólanum.
50/50
49/49
48/48
47 -17. feb. 40. mín hringurinn í fylgd BN, frost og skólskin
46- 16. feb. 20. mín kvöldrölt
45-15. feb. 20. mín kvöldrölt
45/45-14. feb. 20. mín. Tvær göngur einn daginn kalla á rólegheit næsta dag.
44-/44- Laugardagur 13.feb Merkilegur dagur fyrir þá sök að hann var tveggja göngutúra dagur. Í morgun alveg upp að tjörn og svo 20 mín hringurinn um 10 leytið í kvöld. Bara nokkuð ánægð með mig. Svo spillir ekki fyrir að hornafræðin er að rifjast upp og ég að ná áttum í henni.
43/43
12.feb Safnanótt og gigtardagur, kíkti samt í Perluna og Víkina með gamla manninn sem varð óvænt draghaltur og gat því lítið gengið um. Tók lámarks göngutúr seint um kvöldið.
42/42-
11. feb. 20 mín hringurinn
41/41-
10.feb. hálftíma morgunganga.
40/40-
9.feb. Hálftíma morgunganga
39/39-
8. feb. 20 mín hringurinn
38/38-
7 feb.Nú eru dagarnir svo sannarlega farnir að renna út í eitt og ég þarf að athuga dagatalið til að vita hvaða dagur er. Venjulegi 20 mín hringurinn klukkan hálf tólf, frostlaust og þurrt.
37/37- 6/feb. Venjulegi 20 mín hringurinn um miðnætti. Dagurinn slæmur en lagaðist þegar á leið. Seta yfir náminu í nokkra tíma kemur strax fram í verkjum í mjöðmum svo það er geinilegt að það er atvinnuleysið sem veldur betri heilsu þessar síðustu vikur. Því er nú ver.
36/36 5.feb. Hlaupið út um miðnætti í frosti og roki um ljóslausan göngustíg. Háflóð á stórstraumsfjöru.
35/35 4.feb. Bókasafnið búðin og heim. Frost og vindur og Vitafélagið með fræðslu
34/34 3. feb. Bókasafnið og stóri hringurinn
33/33-2.2 Samhverfudagurinn og þriðjudagur. Gengið á Seltjarnarnesinu
32/32 og fyrsti febrúar
---------------------------------------------------------------------- Janúar búinn
31/31 Þetta verður gloppótt ef ég skrifa ekki hér inn í heila viku. en ég labba aldrei minna en 20 mín svo ég skrifa það bara inn á þá daga sem ég er að gleyma að kvitta fyrir göngunni.
30/30 -20 mín hringurinn
29/29 -20 mín hringurinn
28/28- 20 mín hringurinn.
27/27- Tók stóra hringinn (45 mín) ætli ég verð ekki að fara að aðgreina þá með þessu móti. Tannlæknadeildin
26/26- Hljóp út rúmlega tólf að miðnætti í skítakulda og rölti um göturnar í nágrenninu.
25/25- hmm. þetta venjulega ég man ekki hvað stór hringur. Ég þarf greinilega að skrifa oftar.
25/25- Tuttugu mín. hringurinn
24/24- Hálftíma hringurinn
23/23- Bókasafnið-matvörubúðin í roki og rigningu. Gamla úlpan rétt svo vatnsheld ennþá.
22/22- Hljóp 20. mínútna hringinn í flughálku um kl. 18, alveg á síðasta snúningi fyrir þorrablótið.
21/21- 20 mínútna hringurinn í hífandi roki. Varla stætt á göngustígnum fyrir roki en engin hálka, aldrei þessu vant, bara sjórok og voða hressandi að fara út í svona veður. (ræktin með GVÓ í morgun!!)
20/20- Rölti á bókasafnið til að skila og svo niður með Hafnarfjarðarvegi og stóra hringinn.
19/19- Eitthvað var gengið en ef ég skrifa það ekki niður á hverjum degi þa´.....
18/18- Hálftíma Kópavogshringurinn. Flughált en náði að rölt fyrir myrkur.
17/17- Var skilin eftir á Bakkabrautinni og rölti heim í myrkri og hálku. Hverjir hvarta undan snjó og frosti? Ekki ég!
16/16- Óttarstaðir og bæirnir í Hraununum eftir skóla.
15/15- Venjulegur Kópavogshringur í myrkri og rigningu. Góðar regnbuxur yfir náttbuxunum er alveg að gera sig. Fyrsti dagur í Keili.
14/14- Lét nægja að rölta upp á bókasafn í hálkunni, ég held samt að það hafi tekið 20. mín vegna færðarinnar. Hálka!
13/13- Það var eiginlega kominn 14 en ég tel það 13 úr því ég stökk út fyrir svefninn. Rok og rigning!
12/12- Enn í Kópavoginum en stækkaði hringinn austur undir Hafnarfjarðarveg OG tók myndir.
11/11- Sjúkraliðinn og leiðbeinandinn bankaði upp á og við löbbuðum upp að kirkju. Kalt! Brr, frost og vindur.
10/10 - Kópavogur. Ég hljóp út rétt fyrir miðnætti til að missa ekk einn dag úr!
9/9-Kópavogur og áætlunin um að breyta til komst ekki til framkvæmda
8/8-Kópavogur- og á morgun held ég að ég verði að breyta til og fara út fyrir Kópavoginn.
7/7-Kópavogur
6/6-Kópavogur
5/5-Kópavogur
4/4-Kópavogur
3/3-Kópavogur
2/2- Kópavogur
1/1- Lónakot
8. janúar 2010
7. janúar 2010
Ég er að æfa mig í að skrifa 2010, fingurnir eru ekki alveg þjálfaðir á þessa stafi en það kemur.
Ég er búin að fara í 20-30 mínútna göngu á hverjum degi allt árið.
Ég er að hugsa um að segja þetta aftur og aftur og telja svo hvað ég get sagt þetta marga daga í röð. Ábyggilega ekki 365 en 30 væri gott.
Fyrirlesturinn sem ég ætlaði á í Sjóminjasafninu í kvöl var haldin þar án mín. Kaffiboðið hjá öðru vinnublóminu mínu, jamm þær voru tvær blómadrottningarna sitt hvoru megin við mig í vinnunni og ekki nema vona að ég ruglaðist stundum svo ég var farin að segja bara ,,þú þarna, blóma." En nú er ég komin langt út fyrir efnið sem átti að vera á þessa leið- kaffiboðið hjá fyrrverndi vinnufélaga mínum, blóminu sem er að kveðja skerið og ætlar að ná sér í nokkrar miljónir af olíuauði norðmanna, drógst á langinn því ég hafið svo gaman að hitta þessa fyrrverandi vinnufélaga sem mættu. Auðvitað töluðum við um vinnu enda tómir fagmenn á ferðinni.
Þett var gott kvöld, ég fer bara á næsta fyrirlestur hjá Vitafélaginu. Hann verður í febrúar.

5. janúar 2010
Nýtt ár
og ég er ekki ennþá farin að horfa á áramótaskaupið. Ég veit ekki hvernig þetta endar!
Það eru heilir fjórir dagar liðnir af árinu og ég hef á hverjum degi farið út að ganga í 20 til 40 mínútur. Nú verður spennandi að sjá hvort mér tekst að halda þessari ,,keðju" gangandi einhverja daga í viðbót.
Skólinn byrjar 15. jan. og ég hringdi í dag til að fá að fara í fullt nám. Náði mér í eina skólabók á bókasafnið og byrjaði á að rifja upp nokkur hugtök í stærðfræði. Ég minni mig á að flas er ekki til fagnaðar en flana samt áfram að óathuguðu máli.
Gallinn við að hugsa sig um og leggja málin niður fyrir sér er sá að þá þorir maður tæpilega út fyrir þægindarammann.
Hvernig ég ætla svo að lifa næstu mánuðina veit ég ekki en ég er búin að safna forða undanfarnar vikur svo ég á fullt af ónotðum götum á beltinu.

3. janúar 2010
Annáll?
Ef ég tækin mig nú til einhverntíma til að setja saman annál yrði vænlegast að hafa hann í myndum.
Gönguferðir ársins
Þessa tvo daga sem af eru á nýju ári hef ég farið með myndavélina með mér í gönguferðir.
Þetta eru auðvitað heilir tveir dagar og það verður að segjast eins og er að það er ekki farið hratt yfiri eða tekið hraustlega á í göngum þegar myndavélin er með.
Á nýjársdag gekk ég frá Reykjanesbrautinni niður að sjó. Þegar ég fór að telja myndirnar sem ég á eftir í tölvunni þegar ég var búin að vingsa úr og henda því sem var ónothæft og illa tekið átti ég sextíu myndir eftir.
Það segir mér að ég eigi eftir að henda helling því þó litirnir eru ómótstæðilegir og ég smelli af í allar áttir til að ná litbrigðum himnins og jarðar þjónar litlum tilgangi að eiga ótal myndir af sama viðfangsefninu teknar með fárra mínútna millibili. Eða fárra metra millibili öllu heldur.
Það leynir sér svo sem ekki á þessum myndum hver er besta ljósmyndafyrirstætan á Reykjanesskaganum að mínu mati og hér er brot af myndunum af honum.
Sú fyrsta sýnir þó litina yfir Esjunni og Reykjavík rétt undir rökku á nýjársdaginn.
Ég hef ekki ennþá getað gert það upp við mig hvaða myndum úr þeirri séríu ég held eftir.
Þegar ég kom svo aftur upp í bíl eftir gönguna niður að Lónakoti var sólin sest og litadýrðin í vesturátt svo stórfengleg að ég þurfti auðvitað enn að smella af nokkrum myndum og auðvitað af Keili sjálfum enda fátt annað sem rís yfir hraunið á þessum slóðum.
Og þegar ég gekk hringinn minn í vesturbæ Kópavogs í gær var þetta sama viðfangsefni að trufla mig en nú með krepputáknin okkar í forgrunn.Ég velti því fyrir mér hvort ég þurfi ekki að fá mér örstuttan göngutúr með myndavélina í dag og æfa mig í að taka bara eina, í mesta lagi tvær myndir og vanda bara valið.
Ég hefði þurft að skreppa vestur á Gróttu og taka eina eða tvær myndir þar við tækifæri en þú þarf ég aðallega að vinna.
1. janúar 2010
Annáll?
Það eru allir að setja saman annála og ég velti því fyrir mér hvort ég þurfi ekki að gera slíkt hið saman. Finn þó enga löngun hjá mér til að sitja við og rifja upp árið sem leið en kannski eru það bara undanskot og aumingjaskapur.
Annars held ég að það sé merki um heilbrigði að hafa meiri áhuga á að horfa fram á við og nú tel ég niður þar til skólinn byrjar. Verst hvað ég þarf að hreinsa upp erfiðann verkefnalista fyrir þann tíma.

2010

Þá er árið 2010 runnið upp og ég óska öllum sem eiga leið hér um gleði og farsældar á nýju ári með þökkum fyrir árið sem var að líða.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)