Ég tróðst einn hring í ráðhúsi Reykjavíkur í dag og dáðist handverki og hönnun ýmissa frambærilegra einstalinga. Ég féll fyrir hinu og þessu en tímdi ekki að kaupa neitt enda allt á verðlagi sem ég á erfitt með að ráða við. Ég fór þó frá sumum básunum harðákveðin í að koma aftur á mánudag þegar ég væri búin að réttlæta eyðslu í sjálfa mig og kaupa þá að minnsta kosti eitt stykki. Núna þegar ég er ekki lengur með dýrðina fyrir augum minnkar ákafinn í að kaupa eitthvað sem mig vantar ekki fyrir peninga sem ég á ekki til.
Ég er nú samt að leggja inn pöntun fyrir jólagjöfinni í ár!
31. október 2009
Á starfslokasamningi

Það vekur upp blendnar tilfinningar að ganga frá á skrifborðinu og kveðja vinnufélagana síðasta vinnudaginn. Skrifborðið er LOKSINS orðið snyrtilegt, ég er dauðfegin að þurfa ekki að vinna síðast mánuðinn af uppsagnarfrestinum og að vera laus við þá vinnu sem ég er búin að vera að vinna undanfarin fögur ár. Samt er það skrýtin tilfinninga að þurfa ekki að mæta á nokkurn vinnustað eftir helgina og ég velti því fyrir mér hvort ég sé óþarflega kærulaus að vera ekki búin að leita með logandin ljósi að annar vinnu sem ég æti byrjað í sem allra fyrst.
,,Dagurinn í dag er morgundagurinn sem þú beiðst eftir í gær".. segir kínverkst spakmæli og með það í huga ákvað ég að snúa mér að því að hugsa um allt það sem ég hef frestað dag frá degi, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð og alltaf haldið að ég hefði tíma til að sinna ekki seinna en á næsta ári eða eftir næstu vinnutörn. Ætli ég skuldi mér ekki það að láta reyna á hvort ég kemst af með vinnu sem ekki gerir eins miklar kröfur eða ég kemst upp með að eyða minni tíma í. Jafnvel þó ég þurfi að vera á bótum meðan ég næ aðeins áttum og kröftum. Heilsan er jú farin í ,,norður og niðurfallið" eins og Ronja ræningjadóttir hefði orðað það og ekki seinna vænna að ákveða hvort ég ætla að verða öryrki eða koma sjálfir mér á rétt spor aftur.
Ég hef eitthvað að gera á næstunni og eftir áramót bætist eitthvað við ef allt fer sem horfir og skólinn freistar mín þó ég hafi lofað mér því að gera slíkt aldrei aftur. Núna hlakka ég til að geta farið að læra það sem ég hef gaman að en ekki eitthvað sem kemur að góðum notum.
Allt hefur sinn tíma og nú er tími fyrir nýjar leiðir.
25. október 2009
22. október 2009
Orkubúskapurinn
er á bullandi yfirdrætti þessa dagana.
Ég vona að hálfgildings loforð um tilboð um starfslokasamning verði efnt.
Ég vona að hálfgildings loforð um tilboð um starfslokasamning verði efnt.
12. október 2009
Helgarvaktin
Helgarvaktn hófst á mætingu í óvissuferð austur á Flúðum og í henni fékk ég fyrirlestur um kirkjustaðinn í Hruna þar sem ég uppgötvaði hversu fáfróð ég er um land og sögu almennt. Skoðaði svo keramikverkstæði og beint úr því í gróðurhúsaskoðun á Hverarbakka þar sem ég viðaði að mér þekkingarbrotum um tómatarækt. Ég er líka fáfróð um ræktun tómata.
Samkoma með veislumat á hótelinu á Flúðum, rauðvín, brandý og hvítvín gerðu það að verkum að ég var framlág fram eftir sunnudeginum þó ég tæki mér Öskubusku til fyrirmyndar og væri komin inn á herbergi fyrir miðnætti og heim til mín fyrir hádegi.
Endaði svo helgina í matarboði hjá gömlum ferðafélögum og heimsborgurum sem ég fæ seint fullnóg af að hlusta á og ræða við um allt milli heima og geyma. Notalegt kvöld, með góðum mat og frábærum félagsskap.
Mig langar í skóla en fyrst þarf ég að gera svo margt sem krefst peninga að ég verð að vona að það komi eitthvað af viti út úr vinnuumleitunum í vikunni.
Samkoma með veislumat á hótelinu á Flúðum, rauðvín, brandý og hvítvín gerðu það að verkum að ég var framlág fram eftir sunnudeginum þó ég tæki mér Öskubusku til fyrirmyndar og væri komin inn á herbergi fyrir miðnætti og heim til mín fyrir hádegi.
Endaði svo helgina í matarboði hjá gömlum ferðafélögum og heimsborgurum sem ég fæ seint fullnóg af að hlusta á og ræða við um allt milli heima og geyma. Notalegt kvöld, með góðum mat og frábærum félagsskap.
Mig langar í skóla en fyrst þarf ég að gera svo margt sem krefst peninga að ég verð að vona að það komi eitthvað af viti út úr vinnuumleitunum í vikunni.
9. október 2009
Óstuð
Er annars í óttalegu óstuði og geri litið sem ekkert af öllu því sem ég er búin að taka að mér. Selst heldur ekki við tölvuna til að halda einræður á netinu fyrr en ég er orðin svo dofin í kollinum að ég man varla hvað ég heiti.
Mér finnst einhvern veginn að ég ætti að snúa þessari þróun við. Ég skoða það betur eftir helgina en hún verður undirlögð í árshátíðarstússi og ferðum austur fyrir fjall.
Mér finnst einhvern veginn að ég ætti að snúa þessari þróun við. Ég skoða það betur eftir helgina en hún verður undirlögð í árshátíðarstússi og ferðum austur fyrir fjall.
8. október 2009
8. okt

Yngra afkvæmið varð 26 ára í dag. Við heiðruðum hann með nærveru okkar á Fiskmarkaðnum í hádeginu.
Fyrir langa löngu- allavega nokkrum árum sat drengurinn með sorgarsvip á andlitinu í hvert skipti sem fiskur var borinn á borð heima hjá honum. Í dag velur hann sér að fara út að borða á fiskréttarstöðum og borðar hráan fisk af bestu lyst. Hann vildi meina að ég hefði á
Tímarnir breytast og mennirnir með.
------------------
7. október 2009
Á morgun
er annað afmæli og upp á það höldum við með því að fara á Fiskmarkaðinn og borða með afmælisbarninu sem verður 26 ára. Tíminn líður.
38
Ládauð móða
leggst að augans
lygna vatni
– það er sagt
að sumum batni.
Ofar skýjum
opnast vegur
allra vega:
andar þú
mín elskulega?
Hún er liðin:
hljóðar öldur
haminn lauga
– dularfullt
er dáið auga.
leggst að augans
lygna vatni
– það er sagt
að sumum batni.
Ofar skýjum
opnast vegur
allra vega:
andar þú
mín elskulega?
Hún er liðin:
hljóðar öldur
haminn lauga
– dularfullt
er dáið auga.
6. október 2009
Heim og heim aftur

Ég fann hagstætt nettilboð og flaug heim á Austurlandið 28. sept., fékk svo aðeins minna hagstætt nettilboð í dag og flaug heim í Kópavoginn.
Á austurleiðinni ríkti heiðríkjan og endalaus bláminn tók við af hvítum fjallatindum á Norðurlandi. Haustið
réði ríkjum í byggð þó veturinn ríkti á fjöllum.Við mér tóku hauststillurnar í bland við norðanrok sem feykti hvítfyssandi öldunum í suðukatli á firðinum. Rigningardagar þar á milli.

Haustlitirnir: gult, rautt, rauðgult, brúnt, grátt og blóðrauðir strjúpar þegar lömbin hafa jarmað í síðasta sinn eftir mæðrunum sem þau voru dregin frá í réttunum. Svo tökum við slátur.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




