26. ágúst 2009

Morgunverk

Klukkan í kollinum á mér virðist vera komin á það ról að hringja klukkan sex á morgnana. Sex er ekki slæm tala og í morgun vaknaði ég klukkan sex eftir sex tíma svefn.
Það er einn galli á þessari stillingu á kollklukkunni og það er að gigtarlyfin gera ekki ráð fyrir svona stuttum svefni. Hangs fram eftir kvöldi langt frá ,,apótekinu" og miðnæturgauf er þess vegna mjög óhagstætt.

Morgungangan var góð og þó vetrarkvíðinn sé farinn að læðast um skartar síðsumarið sínu fegursta. Dögunin kom inn yfir landið í ljósgráum, bláum og gulum tónum með keim af stolnum rifsberjum.
Í dag verður langur vinnudagur í vinnu og sjálfboðavinnu svo útsaumur, lopapeysur og annað skemmtilegt situr á hakanum.
Mig langar á námskeið í silfurkveikingu, silfurleir, eldsmíði, víravirki, tálgun og steinaskarti. Svo á ég eftir að sinna ullarvinnslunni aftur.
Breyting til batnaðar á heilsufarinu vekur vonir um að geta sinnt einhverju af þessu í vetur en ,,Stundum verða vorin vonum manna hörð" sagð skáldið og ég er svolítið að snúa þessu upp á komandi vetrarmánuði.

25. ágúst 2009

einu sinni var

heimurinn tölvulaus, sjónvarpslaus og jafnvel útvarpslaus en útvarpsleysið var fyrir mína tíð svo ég veit ekkert hvernig var að lifa lífinu án þess að fá fréttir af lands- og heimsmálunum reglulega.
Hitt veit ég að ég hafði mun meiri tíma aflögu meðan sjónvarpið tók sér sumarfrí í einn mánuð á ári og að ég tali nú ekki um áður en tölvur komu inn á heimilið. Nú kem ég litlu í verk sem ekki er gert gegnum tölvu.
Tölvan sem ég hef haft til afnota undanfarna mánuði er biluð, allar myndirnar mínar eru á henni og fullt af öðrum gögnum sem ekki eru geymd annar staðar.

Ég efast um að ég hafi það af að fá mér morgungöngu í fyrramálið. Næturbrölt er ekki góður grunnur fyrir svoleiðis.

  1. Ósvinnur maður
    vakir um allar nætur
    og hyggur að hvívetna.
    Þá er móður
    er að morgni kemur.
    Allt er víl sem var.

23. ágúst 2009

Það er komið hausthljóð í vindinn

og pappamálin fjúka eftir götunum, enn á flótta undan skemmtun menningarnætur. Eða eru þau að dansa lokalagið með síðustu næturhröfnunum?

16. ágúst 2009

Á leiðinni heim

keyrði ég niður í fjöruna við Breiðamerkurlónið, klæddi mig úr skóm og sokkum og gekk niður að sjó.
Úti á Hrollaugseyjum stóð einmanna viti og stöku múkki sveiflaði sér í loftballett yfir briminu, svartur sandurinn var sjóðheitur í sólskininu og iljaði tám og ökklaliðum. Það var freistandi að leggja sig í sandinn til að fá hitann líka á bak og herðar en ég lét mér nægja að sitja og hlusta á öldurnar svarra á sandinum meðan ég drakk kaffið mitt.

13. ágúst 2009

Langanes?

Ég hefði þurft að finna mér tíma til að skreppa á Langanesið áður en ég fer í bæinn aftur á laugardag en fyrst þarf ég að gera nokkra hluti.