15. maí 2009

Tvílandlukt er orð yfir þau lönd sem ekki eru aðeins án þess að eiga land að sjó, þau eru líka umkringd ríkjum sem ekki eiga heldur nokkra sjávarströnd. Strandlaus ríki umlukt öðrum strandlausum ríkjum.
Af einhverjum frekar langsóttum ástæðum koma orðin landlukt og tvílandlukt upp í hugann þegar ég lendi á Héraði. Ólíkt Héraði hobbitanna á þetta Hérað samt sem áður land að sjó, það liggur að minnsta kosti að Héraðsflóanum. Hann er bara svo víðsfjarri öllum skilningarvitum þegar maður stígur út úr fluvélinni á Egilstaðaflugvelli á sólríkum, lognkyrrum vordegi þegar ilminn af nýdreifðum húsdýraáburði leggur fyrir vitin. Þá anda ég djúpt að mér með velþóknun og nýt þess að vera sloppin burt þangað sem heiðríkjan ríkir í hvaða veðri sem er. Ég er komin austur á land.
Bíllinn er á sínum stað á langtímastæðinu og hefur ekki ryðgað að ráði síðan ég sá hann síðast. Rafmagnsleysinu er bjargað af greiðviknum heimamanni og á fjallvegum falla rykið, forarpyttir og þvottabretti í skuggann af blátærri Öxará sem beljar fram fleytifull af leysingavatni og rífur sum staðar með sér stykki úr snjóhvítum sköflunum sem náðu fyrir stuttu að hylja farveg hennar. Það eru ekki margir dagar síðan snjóaði á heiðum svo allir skaflar eru hreinhvítir.
Bíllinn gengur ekki hægagang, bremsurnar eru fastar eftir langa hvíld og saman skapar þetta veruleg óþægindi á niðurleiðinni. Ég þarf að liðka bremsurnar án þess að drepa á bílnum. Mér tekst að finna jafnvægi í þeirri list áður en ég kem að bröttustu brekkunum og það er ekki fyrr en í U beygjunni við póstkassann sem bíllin drepur á sér aftur.
Ég er mætt í sauðburð en hann er bara ekki byrjaður. Það stendur þó allt til bóta og þangað til pota ég niður kartöflum og undirbý sáningu á kálfræi.



13. maí 2009

Of snemma

Ég bókaði flug amk einum degi fyrr en ég ætlaði mér og nú er ég komin í stresskast og tímaþröng en nettilboðin ráða stundum ferðinni.

10. maí 2009

Hrekklaus

Ég skoðaði mbl.is eins og aðir landsmenn þegar það flutti okkur fréttir af hvítabirni norður við Hofsós. Meira að segja myndir af dýrinu höfðu verið sendar til Morgunblaðsins og fylgdu fréttinni.
Eitthvað fannst mér skrítið veðurfarið og snjóalögin fyrir norðan því á annari myndinni var dýrið á auðri jörð þó það væru snjóskaflar í kring en á hinni var alhvít jörð og nærri ökladjúpur snjór.
Það fyrsta sem hvarflaði að mér var að myndirnar væru falsaðar en ég hristi þá hugsun úr kollinum sannfærð um að svona gerðu menn ekki.
Seinna kom í ljós að mér er amk stundum óhætt að treysta hugboðum mínum.

Flugfélagið setti inn 3000 ódýrar flugferðir í sölu fyrir helgina og ég er búin að bóka flug í Egilstaði eldsnemma að morgni 17. júní og aftur til baka 22. júní.

Kannski ég tékki á ódýru flugi til Grímseyjar.

9. maí 2009

Laugardagur


Snemma á laugardagsmorgni vaknar maður, tekur tíma í að átta sig á hvaða dagur er og að það sé ekki vinna. Brosir svo sælubrosi um leið og maður snýr sér á hina hliðina til að halda áfram að sofa.
Þá eru sjálfsögð réttindi vinnuþræla að þurfa ekki að vakna aftur og aftur við fiskiflugusuð.
Samviskulaus henti ég fiskiflugu út í kuldann í morgun og er að hugsa um að gera aðra tilraun til að ferðast um draumalandið.

3. maí 2009

Sunnudagsrúnturinn



Sunnudagsrúnturinn í dag var vestur eftir Reykjanesskaganum, inn á Krýsuvíkurleið, Bláfjallaveg, um Breiðdal, Djúpavatnsleið, Suðurstrandaveg og í krókum og hlykkjum út að Reykjanessvita og heim aftur. Í Grindavík var stoppað til að borða grillaða hamborgara, pulsur og fá tertu í eftirrétt og í ferðalok var farið í vöfflukaffi á Vatnsleysuströnd.
Ég hef alltaf verið veik fyrir bæjarstæðum við fjörukambinn sem er kannski ekki skrýtið hjá fólki sem elst upp í fjörunni og nú hef ég mikla ágirnd á húsi með útsýni yfir öldurót og þarabeðjur í fjöru og á skerjum, og vitaljós lýsir inn í eldhúsglugga á myrkum vetrarkvöldum. Ég get hugsað mér að sitja við stofuglugga og horfa á brimið brotna á skerjunum rétt við gluggann. Hver þarf sólpall og skjól ef svona útsýni er í boði.
Ég tók 132 myndir skv. teljara og þær voru allar teknar bæði í raw og jpg ca 10 fara beint í ruslið en ég á eftir að fara yfir allar hinar og athuga hvort þarf að henda fleirum, rétta svo af slatta því ég halla alveg gífurlega undir flatt þegar ég tek myndir. Ég keypti mér hallamál á vélina en gaf mér ekki nógu mikinn tíma til að æfa mig í að nota það. Svo og því miður komu rigningadropar á linsuna í einhverjum skúrnum svo sennilega þarf ég að fótósjoppa líka einhverjar.
Ég hef eitthvað að dunda í á meðan.
Annars þarf ég að skreppa þessa leið ein eða um það bil ein með myndavélina og þrífót, sleppa öllum krókum og kimum og taka bara myndir.

2. maí 2009

Vormenning og vinamót

Ég lagði malbik undir dekk og ók vestur í bæ. Eins og mín er von og vísa misminnti mig um húsnumer og gekk og ók hringinn í kringum Seljaveg 2. Þegar ég fann ekki það sem ég leitaði að þar hélt ég áfram vestur Seljaveginn og fljótlega sá ég hús sem ég þóttist þekkja af mynd sem ég hafði séð á Facebook. Þar rambaði ég á húsið sem er leigt listamönnum undir vinnustofur og þar með var tilgangi ferðarinnar náð.








Eftir listarölt er bráðnauðsynlegt að fá gott kaffi og það fengum við með meðlæti á Ásvallagötunni.


Ég var nýbúin að hlaða batterýið í myndavélinni og er smá saman að átta mig á því að ef hún er ekki meðferðis tekur enginn myndir á hana svo ég smellti af í allar áttir. Listamenn og listaverk, fólk og kleinur. Þetta var góður dagur loksins þegar ég drattaðist af stað en með þessu áframhaldi verð ég ekki beysin bógur í fyrramálið þegar á að leggja af stað í ferðina þvers og kruss um Reykjanesið.
Eitthvað vilja myndirnar ekki raðast hér upp eins og ég vil en ég veit af reynslunni að það getur tekið mig klukkutíma að setja þær inn aftur og aftur til að fá þær ,,réttar" inn svo ég ætla að sleppa tökunum á þessu máli í kvöld.

Er að hugsa

Um orð flokksformanns Framsóknar í sjónvarpsþætti. Hann sagðist hafa á huga á að flytja í sveit ef vinstri stjórn kæmist til valda á Íslandi. Eignast þar góða nágranna sem myndu umbera hann þangað til vinstri stjórnin liði undir lok og flytja þá til byggða aftur.
Það er formaður gamla bændaflokksins sem telur sveitir landsins vera óbyggðir. Hvað ætli hann telji bændur og búalið vera. Huldufólk?

1. maí 2009

Ekkert

Ekkert að frétta en hamast við að lesa, Noise filter, WB or one-touch, metering operations og svo framvegis.