2. desember 2009

Umsókn í vetrarmyrkri

Umsóknin um námið í Keili er farin út í loftið rafrænt. Hugsa sér hvað lífið er auðvelt á sumum sviðum. Tölva og skanni er allt sem þarf til að senda alla þá pappíra sem mér dettur í hug þangað sem mér dettur í hug. Svo framarlega að nettenging sé til staðar.
Á morgun ætla ég að leggjast í landshornaflakk og leita uppi alvöru vetrarmyrkur á Íslandi.
Ég efast um að ég gefi mér tíma til að setja eitthvað misgáfulegt á skjáinn fyrr en ég kem aftur.










Og stundum þarf maður að líta upp frá tölvunni, þá er útsýnið svona.

Engin ummæli: