23. desember 2009

Þorláksmessa á vetri

Það er Þorláksmessa tvisvar á ári, með um það bil 6 mánaða millibili. Engum dettur í hug að borða skötu á Þorláksmessu á sumri og því miður er varla hægt að fá keypta skötu nema rétt fyrir jól.
Ég keypti mér tvo skötubita á Kolaportinu á laugardagnn og ætla að stinga þeim í pottinn hjá Gamla manninum á eftir. Hann eldar skötu fyrir sig og alla þá vini og vandamenn sem áhuga hafa á að vera með í hádegisskötuveislunni á Þorlák enda á hann þessa forláta eldavél sem hann fer með út á bílastæðið framan við húsið og eldar þar skötu.
Ég ætlaði að kaupa mér saltfiskbita til að stinga í pottinn líka.

Ég fékk svar frá LÍN við lámsumsókninni minni. Þó ég sé ekki alveg að ná samhengi í þeim upplýsingum sem ég fékk net- og símleiðis og því sem stendur í lánsáætluninni ætla ég að fresta því fram yfir jól að hringja í LÍN til að fá útskýringar á málum.
Lánið fyrir skólagjöldum er t.d. 150 þús. lægra en skólagjöldin og ég sem hélt að það væri lánað allt nema 45 þús.
Mig vantar hjálparálf sem setur niður fyrir mig fjárhagsáætlun. Mér vex óskaplega í augum að gera það sjálf, eða ég þori ekki. Ég gæti áttað mig á að þetta sé ekki raunhæfur möguleiki og vil ekki horfast í augu við það.

Ég fékk listilega skreytta jólagjöf áðan. Utan á henni er sumarævintýri í myndasögu formi. Það er bjart yfir þeim skreytingameistara.

Engin ummæli: