17. desember 2009

Keflavík

Mér er mikið niðri fyrir eftir lestur á Fréttablaðinu í morgun. Aldrei þessu vanta er það ekki bara málfræðikunnátta blaðamanna á Fréttablaðinu sem fer fyrir brjóstið á mér heldur viðhorf ýmissa eða allra þeirra stétta sem þurfa að hlýta niðurskurði vegna sparnaðar. Allir æpa ekki ég og í þeim orðum liggur auðvitað boðskapurinn ,,aðrir eiga að taka á sig niðurskurðinn"
Ekki meira um það í bili nú ætla ég að skreppa í viðtal í Keili vegna háskólabrúarinnar og eftir það þarf ég að vinna niður hauginn af óklárðum verkum sem valda mér kvíðaröskun i svefni.









Svo þarf ég að monta mig með einni mynd úr síðustu austurferð.

Engin ummæli: