Í sveit austur á landi sem var fámenn fyrir 40 árum og er enn fámennari nú lærði ég að óska fóki gleðilegra jóla þegar ég hitti það í síðasta skiptið fyrir jól. Þetta var og er góður siður því jólin eru stutt og of seint að óska fólki gleðilegra jóla eftir á. Að vísu segir maður stundum gleðilega rest ef maður rekst á fólk á tímabilinu 25. des til 6. jan. en þá teljast jólin formlega liðin.
Gleðilegt ár er aftur á móti kveðja sem ég lærði að nota þegar ég hitti fólk í fyrsta skipti á nýju ári. Mér finnst það nokkuð rökrétt því árið er jú 365 dagar eða um það bil og engin ástæða til að ætla að ég hitti ekki vini og ættingja einhverntíma á þvi tímabili. Nú ef ekki þá held ég að þeim og mér slétt sama þó þeir fái ekki árs- og friðarkveðju frá mér.
Ég hef tekið eftir því að sífellt fleiri eru farinir að óska mér gleðilegs árs milli jóla og nýárs og þó ég reyni að taka þessu af æðruleysti get ég ekki varist því að hugsa um orðatiltækið ,,Þegar ein beljan mígur....!".
Því ætla ég ekki að óska neinum gleðilegs árs fyrr en nýtt ár rennur upp, þangað til ,,góðar stundir"
Engin ummæli:
Skrifa ummæli