Frá því ég skráði mig á facebook fyrir langa löngu hefur alltof langur tími farið í hinar og þessar aðgerðir sem boðið er upp á þar. Lesa, skoða, setja inn myndir og fara í tölvuleiki. Ef ég hefði sleppt einhverju af þessu undanafnar vikur væri ég minna stressuð í dag en af því ég hef ekki alltaf vit fyrir sjálfir mér og þjáist af mismiklu stjórnleysi er ég búin að missa tökin á verkefninu sem ég ætlaði að vera búin með 1. des.
Af þessum ástæðum er ég búin að setja sjálfa mig í facebook bann og það nær bæði til garðræktarinna í töluvgarðinum og að skrifa athugasemdir í þessu netsamfélagi sem ég vil ekki kalla fésbók þó mér leiðist ógurlega að nota orðið facebook.
Ég svindla samt aðeins og les stöðuuppfærslur hjá vinum og vandamönnum og dáist að myndum af nýjum ættingjum. Þori samt ekki fyrir mitt litla líf að segja orð þar sem ég er búin að lýsa því yfir opinberlega að ég sé í banni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli