Ég fékk bíoferð í jólagjöf. Hún var farin í kvöld og ég er dolfallin, heilluð, langar til að fara aftur og sjá betur öll smáatriðin sem fóru fram hjá mér í kvöld.
Avatar í þrívídd er eitthvað sem ég ætla að sjá fyrir mér þegar ég loka augunum á koddanum á eftir og svo get ég eiginlega ekki sagt neitt meira um það í bíli.
Jólin eru langt komin, sólin er farin að hækka á lofti og það er jafn gaman á hverju ári. Verður reyndar skemmtilegara með hverju árinu. Það gerir aldurinn!
Aldurinn gerir líka það að verkum að nú eru bestu jólagjafirnar mínar að eiga góða daga með mínum nánustu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli