,,Gef ég þeim sem gaf og gef mér aðra nýja" sagðist hún móðir mín hafa sagt þegar hún tróð barnatönnunum sínu inn í hlöðuvegginn. Þar eru þær enn og hún fékk aðrar nýjar.
Það eru bara engir hlaðnir hlöðu eða fjárhúsveggir orðið til að setja tennurnar sínar í. Sennilega flutti tannálfurinn hingað þess vegna. Ég átta mig ekki alveg á því hvaðan hann kom.
Allavega er tannálfur af erlendu bergi brotinn að safna íslenskum tönnum, hver veit hvað hann ætlast fyrir með allar þessar tennur. Búa til voodoo brúður kannski. Eða eitthvað verra.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli