Það er aldrei meira að gera en þegar maður heldur að maður hafi nógan tíma. Tíminn er svo mikill að manni verður ekkert úr verki. Ég æfði mig nú samt í að kenna orekeringu í kvöld, þrír fyrrverandi vinnufélagar mættu og æfðu sig í að búa til hnúta, lykkjulauf, keðjur og hringi og þær vildu ólmar fá að mæta aftur á mánudag svo þetta hefur ekki verið alveg mislukkað hjá mér.
Námskeiðsdagur á morgun og námskeiðskvöld og opið hús hjá listamönnunum í gær og það er bara búið að vera yfrið nóg að gera alla vikuna. Ég þarf samt að koma meiru í verk í næstu viku. Þe. ég þarf að afkasta meiru í vinnunni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli