Hjá heimavinnandi atvinnuleysingju með of mörg verkefni líður dagurinn á mikilla tilþrifa. Mér tókst samt að plokka nokkra gula miða af ísskápnum en Flubbinn er farin að þekja ísskápinn með gulum límmiðum, árituðum hinum og þessum athugasemdum Maður skyldi ætla að þetta væru uppbyggilegar og jákvæðar athugasemdir hugsaðar sem uppörvandi lestur fyrir aldraða atvinnulausa móður en það er öðru nær. Þetta er hennar örþrifaráði til að fá mig til að gera það sem hún setur mér fyrir. Á þeim ertu athugsemdir eins og ,,fara með ruslið", ,,ganga frá hjólinu í geymslunni" ,,hringja í Smiðinn" ,,skila bókunum" og annað í þessum dúr. Ég bíð bara eftir að þarna birtist miði með ,,taka lýsið" ,,bursta tennurnar" og ,,ekki borða kökurnar". Er nema von að ég sé orðin gráhærð. Sem minnir mig á það, ungur frændi minn er haltur eftir að hann fékk spark í hnéð á degi ,,spörkum í rauðhærða" Ætli það hafi nokkuð verð sparkað í Flubbann minn í vinnunni?
Aftur að gulum miðum.
Ég er með Windows 7 stýrikerfi á tölvunni og í því er hægt að líma gula límmiða á skjáinn. Stórsnjallt uppátæki og í staðin fyrir að bæta límmiðum í safnið á ísskápnum hengi ég mína minnismiða á tölvuskjáinn. Þar er líka klukka og dagatal og nú sé ég að klukkan er orðin of margt til að tala um fjólubláa mús með gul augu en ferðalag hennar um bílastæðiði og íbúðina er það markverðasta sem gerðist hér í dag. Fyrir utan námskeiðið auðvita en það var nú meira í kvöld en í dag.

Og þá er best að bæta límmiðum á skjáinn áður en ég knúsa koddann. Ég hefði viljað græna límmiða líka!
1 ummæli:
Snild þetta með gulumiðanna, þarf að fara skoða það og tileinka mér, konan sem mann ekkert stundinni lengur. Bíddu hvað ætlaði ég aftur að fara gera, hummmmmmmmmmmmmm
Skrifa ummæli