8. nóvember 2009

Afmæliskaffi

Flubbinn minn bauð í afmæliskaffi í dag og þó aðeins helmingurinn af gestunum sé kominn er húsið orðið fullt af fólki og smáfólki. Ég forðaði mér í kjallarann enda engin sæti laus á efri hæðinni.
Ef það væri hægt að loka á milli hæða væri ég til í að setja mynd í videoið og slappa af.
Kannski ég skoði hvað ég á af handavinnu úr því það er ekki svefnfriður.

Engin ummæli: